Umsögn um um frumvarp til laga um brottfararstöð

Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að stjórnvöld vilji hverfa frá þeirri framkvæmd að vista umsækjendur um alþjóðlega vernd í fangelsum með dæmdum einstaklingum og aðskilja fjölskyldur þar sem börn eru vistuð innan fósturkerfisins. Samtímis gerir deildin þó alvarlegar athugasemdir við frumvarp til laga um brottfarastöðvar (hér eftir varðhaldsstöð) sem nánar er fjallað um í umsögn þessari, enda felur það í sér hættu á fjölþættum og alvarlegum mannréttindabrotum gegn þeim hópi sem frumvarpið beinist gegn, sem gjarnan er í viðkvæmri stöðu fyrir.