Million Beyene, blaðamaður og ritstjóri óháða fréttamiðilsins Addis Standard, var numinn á brott 15. apríl í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, af óþekktum aðilum í borgaralegum klæðnaði.
Talið er að hann sé í haldi án ákæru á ótilgreindum, leynilegum varðhaldsstað, án aðgangs að lögfræðingi eða fjölskyldu sinni. Brottnámið virðist tengjast störfum hans sem blaðamaður.
SMS-félagar Amnesty hvetja eþíópísk stjórnvöld til að rannsaka málið á skilvirkan, óháðan, ítarlegan og gagnsæjan hátt. Ef Million Beyene er í haldi yfirvalda ber að láta hann tafarlaust lausan.

