MANNÚÐARKEÐJAN – SÖNGUR SEM SAMEINAR  

Komdu og vertu hluti af Mannúðarkeðjunni á Austurvelli fimmtudaginn 24. september kl. 12:15.

Við ætlum að koma saman á Austurvelli og mynda keðju til stuðnings fólki á flótta í Mannúðarkeðjunni, keðju samstöðu, mannúðar og virðingar fyrir réttindum allra. 

Mannúðarkeðjan er hluti af herferð Amnesty International á Íslandi „Mannúðin mun sigra – Virðum réttindi fólks á flótta“. Með henni viljum við minna á það sem sameinar okkur: mannlega reisn, samkennd og þá grundvallarhugmynd að mannréttindi eigi að gilda fyrir okkur öll, óháð því hvaðan við komum. 

Í Mannúðarkeðjunni verður tónlistin hjarta samstöðunnar undir yfirskriftinni „Söngur sem sameinar en Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International flytur einnig erindi. 

Páll Óskar Hjálmtýsson leiðir samsönginn við undirleik Ásgeirs Ásgeirssonar. Með honum syngja Ljóti kórinn, undir stjórn Nönnu Hlífar Ingvadóttur ásamt Kammerkórnum Huldur og Háskólakórnum. 

 Við hvetjum öll sem mæta til að taka undir. Margar ólíkar raddir sameinast í söng, í anda samstöðu og mannúðar. 

Þátttakendur í Mannúðarkeðjunni mynda hring utan um stóran og gulan segldúk með skilaboðunum: 

MANNÚÐIN MUN SIGRA – VIRÐUM RÉTTINDI FÓLKS Á FLÓTTA.  

Að Mannúðarkeðjunni lokinni verða stjórnvöldum afhentar undirskriftir í tengslum við ákall Íslandsdeildar Amnesty International til íslenskra stjórnvalda um að tryggja að réttindi fólks á flótta séu virt. Skorað er á stjórnvöld að standa vörð um mannréttindi og þannig tryggja vernd og mannlega reisn þeirra sem flýja stríð og ofsóknir.  

Þú getur lagt þitt af mörkum með því að mæta, taka þátt í Mannúðarkeðjunni, syngja með okkur og skrifa undir ákallið. 

Skrifaðu undir ákallið  

Austurvöllur 
Fimmtudagurinn 24. september 
Kl. 12:15 

Ótti sundrar. Mannúð sameinar. 

Mætum. Stöndum saman. Syngjum saman.