Ungi aðgerðasinninn Rakotoarijaona Vonimahery, kallaður Mahery, var handtekinn að geðþótta án heimildar á vinnustað sínum af þjóðarvarðarliðsmönnum þann 21. apríl 2026 í höfuðborginni Antananarivo á Madagaskar. Hann var færður í gæsluvarðhald þar sem honum var haldið í viku án aðgangs að lögfræðingi.
Mahery hefur verið ákærður fyrir „glæpsamlegt samsæri“ og á yfir höfði sér fimm ára fangelsi verði hann fundinn sekur. Honum er haldið fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið sitt í samræðum við fyrrum stjórnmálamann á samskiptamiðlinum WhatsApp um stöðu mála vegna pólitískra breytinga í landinu og svikin loforð um umbætur.
Her Madagaskar hrifsaði völd í október 2025 í kjölfar mótmæla ungs fólks sem krafðist meðal annars betri grunnþjónustu, sérstaklega aðgangs að vatni og rafmagni.
Með nýjum yfirvöldum hefur kúgun aukist undir því yfirskini að verið sé að berjast gegn spillingu. Ákærum á borð við glæpsamleg samsæri og ógn við þjóðaröryggi hefur verið beitt til að þagga niður í ungum aðgerðasinnum, borgaralegu samfélagi og þeim sem tengjast fyrri stjórnvöldum.
SMS-félagar kalla eftir því að yfirvöld á Madagaskar leysi Mahery úr haldi og alla aðra aðgerðasinna sem eru í haldi fyrir að nýta réttindi sín.

