Opið bréf til heimsleiðtoga vegna brýnnar nauðsynjar fjárhagstuðngins við Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna

Íslandsdeild Amnesty International lýsir yfir alvarlegum áhyggjum vegna ákvörðunar ríkisstjórnar Íslands um að frysta fjármögnun til PalestínuflóttamannaaðstoðarSameinuðu þjóðanna (UNRWA) og hvetjum þig til að tryggja að ríkistjórn þín styðji störf UNRWA. Frysting fjármagns eykur á þjáningar rúmlega tveggja milljóna palestínskra flóttamanna, sem skráðir eru flóttamenn hjá UNRWA.  Rúmlega 70% íbúa Gaza hafa verið á landflótta síðan árið 1948 en nú vofir yfir öllum íbúum svæðisins yfirgnæfandi hætta á hópmorði.