Mið-Austurlönd: Leiðtogar heimsins verða að ná samkomulagi um varanlegt vopnahlé

Óstöðug og tímabundin vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans, og milli Ísraels og Líbanons, verða að víkja fyrir varanlegu, stöðugu og alhliða vopnahléi sem nær til allra landa sem átökin hafa áhrif á, að sögn Amnesty International. Koma þarf í veg fyrir frekari hörmulegar þjáningar óbreyttra borgara og ryðja brautina fyrir réttlæti, virðingu fyrir alþjóðalögum og langtímavernd mannréttinda.

Þrátt fyrir að átökin hafi farið minnkandi er þetta enn alvarleg og viðkvæm staða fyrir óbreytta borgara. Bæði vopnahléin eru brothætt og eiga á hættu að rofna, sem setur milljónir einstaklinga í hættu. Bandaríkin og Íran halda áfram hótunum og árásum; í Líbanon halda átökin áfram og fólk er enn á flótta; óbreyttir borgarar í Íran standa frammi fyrir hættu vegna endurtekinna árása og banvænnar kúgunar.

Alþjóðasamfélagið verður nú að draga skýra línu: Það verður að koma á varanlegu og raunverulegu vopnahléi; það krefst þess að allir aðilar stöðvi öll vopnuð átök.

Agnès Callamard aðalframkvæmdastjóri Amnesty International

Samningar um vopnahlé náðust á Gaza árið 2025 og í Líbanon árið 2024 en mistókst hrapallega að stöðva árásir Ísraels á óbreytta borgara. Allt að 765 Palestínubúar hafa verið drepnir síðan þá, auk þess sem nær daglegar loftárásir og umfangsmikil eyðilegging á eignum óbreyttra borgara hefur átt sér stað í suðurhluta Líbanons.

Á svæði sem lengi hefur markast af átökum, þar sem refsileysi fyrir brot á alþjóðalögum hefur viðgengist um langa hríð og stöðug hætta er á endurteknu ofbeldi, geta óbreyttir borgarar ekki þolað enn eitt hlutbundið, valkvætt eða skammvinnt vopnahlé sem skilur þá eftir í ótta og viðbúna því að upplifa endurtekin voðaverk.

Meira en 5.000 einstaklingar hafa verið drepnir og milljónir orðið fyrir áhrifum um allt svæðið þar sem átök hafa harðnað, og óbreyttir borgarar og borgaralegar eignir orðið fyrir árásum. Allir aðilar átakanna hafa beitt ólögmætum árásum og sýnt lífi fólks lítilsvirðingu.

Varanlegt vopnahlé er eina trúverðuga leiðin til að vernda óbreytta borgara og tryggja langtímaöryggi, mannréttindi og réttlæti um allt svæðið, þar á meðal í Íran, Líbanon, Ísrael, á hernumda svæðinu í Palestínu og í Persaflóaríkjunum.

Í Íran hafa þúsundir verið drepin og særð, á sama tíma og kúgun hefur aukist. Í Líbanon hafa þúsundir verið drepin og særð, og árásir og fólksflótti heldur áfram. Óbreyttir borgarar í Ísrael, á Vesturbakkanum og í Persaflóaríkjunum hafa einnig látið lífið í áframhaldandi átökum.

„Vopnahlé sem fylgir ekki langtímalausnum sem vernda mannréttindi og taka á rótum vandans er lítið meira en tímabundinn plástur á djúpt sár,“ sagði Agnès Callamard.

Amnesty International kallar eftir tvíþættri nálgun sem setur fólkið sjálft í forgrunn og komið er á varanlegu vopnahléi, ásamt aðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir frekari voðaverk, tryggja ábyrgð og styðja við mannréttindi.

„Varanlegt og alhliða vopnahlé verður að taka gildi tafarlaust til að gríðarlegar þjáningar óbreyttra borgara verði ekki að sjálfsögðum hlut. Verja þarf sameiginlega mannúð okkar og skapa skilyrði fyrir framtíð sem byggir á mannréttindum, réttlæti og stöðugleika,“ sagði Agnès Callamard.

Hér má lesa fréttatilkynningu í heild á ensku frá Amnesty International. Hér má einnig finna rannsóknarskýrslu Amnesty International sem fréttin er byggð á.