Íslandsdeild Amnesty International minnir á þær ríku skyldur stjórnvalda að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar og mikilvægi þess að axla ábyrgð og skapa hér góð skilyrði fyrir fólk á flótta. Íslenskum stjórnvöldum ber að tryggja að lög séu í samræmi við alþjóðlega mannréttindasamninga, svo sem mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, samning Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland hefur fullgilt, auk Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu sem báðir hafa verið lögfestir hér á landi.
Ítrekað hefur verið bent á skort á samráði við gerð frumvarpsins auk þess að bent hefur verið á verulega vankanta á efni frumvarpsins. Deildin áréttar sérstaklega áskorun sína og 14 annarra samtaka til ríkisstjórnarinnar um að draga þetta frumvarp til baka og vinna það betur og í mun meira samráði við alla þá hagsmunaaðila sem að málaflokknum koma. Mikilvægt er að lagabreytingar sem þessar séu unnar í þverfaglegu samráði, til þess að skapa sátt um stefnu og lagaumhverfi í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd með mannúð og mannréttindi að leiðarljósi.

