Úthringiverkefni á vegum Símstöðarinnar
Um þessar mundir sér fyrirtækið Símstöðin um að hringja í almenning fyrir okkar hönd til að safna stökum styrkjum að upphæð 5.900 kr.
Um þessar mundir sér fyrirtækið Símstöðin um að hringja í almenning fyrir okkar hönd til að safna stökum styrkjum að upphæð 5.900 kr.
Mannréttindafrömuðurinn Nimet Tanrıkulu var handtekin á heimili sínu í Istanbúl af lögreglunni þann 26. nóvember síðastliðinn.
Mannréttindafrömuðurinn Moussa Tchangari og framkvæmdastjóri félagasamtakanna Citizens’ Alternative Spaces var handtekinn þann 3. desember síðastliðinn á heimili sínu í Niamey, höfuðborg Níger.
Íslandsdeild Amnesty International hefur gefið út fræðsluefnið Réttindi útskýrð sem eru tvö fræðsluhefti sem fjalla um mannréttindi og vopnuð átök.
Gao Zhen, þekktur kínverskur listamaður, var handtekinn af yfirvöldum þann 26. ágúst 2024 þegar hann var í ferðalagi með konu sinni og barni í Kína.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International var með mannréttindagjörning fyrir utan Alþingishúsið í hádeginu þann 9. desember.
Á alþjóðlega mannréttindadeginum, þriðjudaginn 10. desember, frumsýnir Íslandsdeild Amnesty International heimildarmyndina Vonarljós í Bíó Paradís kl. 19 í sal 1. Aðgangur er ókeypis og öllum boðið að mæta á meðan húsrúm leyfir.
Nýútkomin skýrsla Amnesty International leiðir í ljós að nægjanlegur grundvöllur er til þess að álykta að Ísrael hafi framið og haldi áfram að fremja hópmorð gegn Palestínubúum á Gaza.
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC) hefur gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísraels og Mohammed Diab Ibrahim Al-Masri, yfirmanni al-Qassam hersveita Hamas (þekktur sem Deif), vegna ákæra um stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð sem tengist yfirstandandi átökum fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Frá því í nóvember í ár hafa yfirvöld í Venesúela hert árásir sínar gegn PROVEA, frjálsum félagasamtökum sem verja mannréttindi þar í landi.
Herferðin Þitt nafn bjargar lífi gengur vel í ár líkt og áður. Undirskriftum er safnað víðs vegar um heim til stuðnings níu einstaklingum og hópum sem þolað hafa mannréttindabrot. Fjölmargar fræðslur um herferðina hafa verið í skólum, bæði framhalds- og grunnskólum. Á döfinni eru fjölbreyttir viðburðir og undirskriftasafnanir í tengslum við herferðina.
Í nýlegri úttekt vakti Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna (e. Human Rights Committee) athygli á áhyggjum sínum er varða mannréttindi á Íslandi, þar sem nefndin tók meðal annars undir áhyggjuefni sem sett voru fram í skriflegri skýrslu Amnesty International. Nefndin tók undir þrjú af fjórum lykilatriðum sem Amnesty International vakti sérstaklega athygli á og lagði til breytingar er varða útlendingalög, beitingu einangrunarvistar og lagaákvæði um eftirlit með aðgerðum lögreglu.