Súdan: Kynferðisfbeldi algengt í átökunum
Kynferðisofbeldi er algengt í átökunum í Súdan. 12 milljónir eiga á hættu að verða fyrir kynferðisofbeldi.
Kynferðisofbeldi er algengt í átökunum í Súdan. 12 milljónir eiga á hættu að verða fyrir kynferðisofbeldi.
Saleh Diab og stórfjölskylda hans, alls 23 einstaklingar og þar af nokkur börn, eiga á hættu að sæta ólögmætum flutningum frá Austur-Jerúsalem. Fjölskyldan hefur staðið í lagalegri baráttu við landtökufólk í áratugi.
Dómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði að leysa Mahmoud Khalil úr haldi gegn tryggingu en hann var þrjá mánuði í ólögmætu haldi. Hann er palestínskur aðgerðasinni með ótímabundið dvalarleyfi í Bandaríkjunum og lauk nýlega námi við Columbia-háskólann.
Stjórnarandstæðingarnir og samviskufangarnir José Daniel Ferrer og Félix Navarro voru handteknir að geðþótta á ný þann 29. apríl 2025.
Ríkisstjórn Trump skar snögglega niður erlenda aðstoð Bandaríkjanna. Amnesty International rannsakaði áhrif þessa niðurskurðar á verkefnum víðs vegar um heiminn sem miða meðal annars að því að veita nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, tryggja fæðuöryggi, athvarf, heilbrigðisþjónustu og mannúðaraðstoð til fólks í viðkvæmri stöðu. Frá þessu er greint í nýlegri skýrslu Amnesty International, Lives at risk.
Bandarísk stjórnvöld beittu neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þann 4. júní gegn ályktun þar sem krafist er tafarlauss vopnahlés á Gaza, lausnar gísla og tafarlausrar og skilyrðislausrar afléttingar allra takmarkana á mannúðaraðstoð.
Gleðigangan í Búdapest í Ungverjalandi er í hættu. Ný löggjöf í Ungverjalandi tók gildi 15. apríl 2025 en lögunum er hægt að beita til að banna gleðigönguna þar í landi.
Okkar árlega herferð Þitt nafn bjargar lífi gekk vel árið 2024 þrátt fyrir að hún hafi verið minni í umsvifum en undanfarin ár. Á Íslandi söfnuðust 49.038 undirskriftir fyrir öll málin sem var aðeins meira en í fyrra ef miðað er við fjölda mála þar sem málin í ár voru níu en ekki tíu eins og undanfarin ár. Í heildina á heimsvísu var gripið til tæplega 4,7 milljóna aðgerða í 200 löndum og næstum 380 þúsund stuðningskveðjur voru skrifaðar til þolendanna til að sýna þeim stuðning á erfiðum tímum.
Götukynnar Íslandsdeildar Amnesty International hafa nú hafið störf fyrir sumarið. Þau munu kynna starf samtakanna og bjóða áhugasömu fólki að gerast Vonarljós. Vonarljós eru mánaðarlegir styrktaraðilar samtakanna og tákn um von fyrir þolendur mannréttindabrota.
Ný löggjöf í Ungverjalandi tók gildi 15. apríl 2025 en lögunum er hægt að beita til að banna gleðigönguna þar í landi. Amnesty International hóf í kjölfarið alþjóðlega herferð til að kalla eftir því að lögreglustjóri Búdapest sjái til þess að fólk geti tekið þátt í gleðigöngunni og tryggi öryggi þátttakenda. Fólk um allan heim er hvatt til að sýna hinsegin fólki í Ungverjalandi stuðning.
Blaðamaðurinn Hamid Farhadi starfar fyrir sjálfstætt dagblað sem er starfrækt í útlegð. Hann var handtekinn af yfirvöldum 3. september 2024 og dæmdur í tveggja ára fangelsi19. september án verjanda.
Þrír mannréttindafrömuðir í Túnis voru handteknir að geðþótta af yfirvöldum í maí 2024, Sherifa Riahi, þá í fæðingarorlofi, Yadh Bousselmi og Mohamed Joo, fyrrum og starfandi starfsfólk samtakanna Terre D’asile Tunisie sem aðstoða farand- og flóttafólk. Nokkrum dögum síðar var Imen Ouardani, fyrrum embættiskona sem var í samstarfi við samtökin, einnig handtekin. Allir þessir einstaklingar eru enn í gæsluvarðhaldi að geðþótta.