Tjáningarfrelsið eftir heimshlutum
s
s
Tjáningarfrelsið er undirstaða lýðræðis og nauðsynlegt aðhald fyrir stjórnvöld. Mikilvægt er að fólk geti tjáð sig óttalaust og án þvingana eða ólögmætra afskipta ríkisvaldsins og þannig notið mannréttinda sinna í opnu og sanngjörnu samfélagi.
Íslandsdeild Amnesty International gerir ekki sérstakar athugasemdir um efni frumvarpsins um frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Árið 2024 var mesti fjöldi aftaka á heimsvísu frá árinu 2015 þar sem rúmlega 1.500 aftökur áttu sér stað í 15 löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar í heiminum.
Í febrúar 2025 ákærðu yfirvöld í Texas Cesar og Noreliu frá Venesúela fyrir „ólöglega” komu til landsins árið 2022. Síðan þá hafa þau verið handtekin ólöglega tvisvar af yfirvöldum og aðskilin frá börnum sínum þrátt fyrir það að fjölskyldan sé með gilda tímabundna vernd (e. TPS) og umsókn um alþjóðlega vernd í vinnslu. Í bæði skiptin hefur alríkisdómari leyst þau úr haldi en yfirvöld í Texas hafa ekki fellt niður ákærur á hendur þeim.
Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands hefur boðið Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísrael í heimsókn til Ungverjalands og stendur heimsóknin yfir næstu daga. Í nóvember 2024 gaf Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn út handtökuskipun á hendur Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísrael á grundvelli ákæra um stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð.
Gulfáninn er nýtt verkefni á vegum Íslandsdeildar Amnesty International sem miðað er að framhaldsskólum og unglingadeildum grunnskóla.
Innflytjendayfirvöld Bandaríkjanna handtóku Mahmoud Khalil ólöglega og sætir hann nú geðþóttavarðhaldi vegna hlutverks hans í nemendamótmælum við Columbia-háskólann. Hann hefur ekki verið ákærður fyrir neinn glæp.
Í kjölfar fjölda árása Ísraels á hernumda Gaza aðfaranótt 18. mars síðastliðinn þar sem minnst 414 Palestínubúar létu lífið, þar á meðal 174 börn og yfir 550 voru lagðir inn á sjúkrahús sagði Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International:
Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, hefur verið handtekinn af filippseyskum yfirvöldum, í kjölfar handtökuskipunar Alþjóðasakamáladómstólsins, fyrir glæpi gegn mannúð sem tengjast „stríði gegn fíkniefnum“.
Bloggarinn, rithöfundurinn og stofnandi háðsádeilusíðunnar Qaznews24 á Instagram, Temirlan Ensebek, var handtekinn þann 17. janúar og ákærður fyrir að „hvetja til ágreinings milli þjóðernishópa“ vegna færslu á Instagram-síðunni.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International var haldinn 6. mars síðastliðinn. Að venju var ársskýrsla deildarinnar flutt, fjárhagur og ársreikningar kynnt og samþykkt á fundinum. Fjárhagsáætlun og starfsáætlun fyrir komandi ár lögð fram til samþykktar. Engar lagabreytingar voru að þessu sinni.