Ársskýrsla Íslandsdeildarinnar 2019
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2019 er komin út og verður kynnt á aðalfundi í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 17:00.
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2019 er komin út og verður kynnt á aðalfundi í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 17:00.
Í gær afhenti Snædís Lilja Káradóttir, fyrir hönd ungliðahreyfingar Íslandsdeildar Amnesty International, Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra undirskriftir 2342 einstaklinga sem skrifuðu undir ákall þar sem krafist er þess að íslensk stjórnvöld veki athygli á stöðu mannréttinda í Íran á alþjóðavettvangi.
Aðalfundur Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Ráðstefnan fer fram á Laugarvatni dagana 16. – 19. júlí og verður haldin í Héraðsskólanum. Staðsetningin er frábær og náttúran yndisleg; fjalllendi, Laugarvatn og græn svæði. Þátttakendum verður boðið í Fontana heilsulind þar sem er að finna potta og gufur við vatnið.
Íslandsdeild Amnesty International sendir reglulega umsagnir um frumvörp til laga á Íslandi en einnig umsagnir til alþjóðaaðila er varðar Ísland.
Tatyana Revva, læknir frá Volgograd í suðurhluta Rússlands á yfir höfði sér málaferli sem gætu leitt til þess að hún missi lækningaleyfið í kjölfar þess að hún kvartaði yfir skorti á hlífðarbúnaði og öðrum vandamálum tengdum kórónuveirufaraldrinum á spítalanum þar sem hún starfar.
Íslandsdeild Amnesty International kynnir með stolti fyrsta fulltrúa deildarinnar í Global Youth Collective, alþjóðlegu ungmennaráði Amnesty International. Þórhildur Elísabet Þórsdóttir var valin í byrjun maí sem fulltrúi okkar í ráðinu. Hún hefur verið meðlimur ungliðahreyfingar Íslandsdeildarinnar um langt skeið og sinnt þar ýmsum sjálfboðaliða- og aðgerðastörfum. Hún var formaður stjórnar ungliðahreyfingarinnar frá 2016 til 2019, verið fulltrúi deildarinnar á ráðstefnum og fundum erlendis og stofnaði Háskólafélag Amnesty í Háskóla Íslands ásamt öðrum haustið 2018. Þórhildur situr nú í aðalstjórn Íslandsdeildarinnar og er jafnframt yngsti stjórnarmeðlimurinn en hún var aðeins 19 ára þegar hún var kosin í stjórnina í mars 2019.
Samkvæmt ársskýrslu Amnesty International um mannréttindi í Evrópu og Mið-Asíu fyrir árið 2019 fólust helstu mannréttindabrotin í tilraunum til að draga úr sjálfstæði dómskerfisins til að forðast ábyrgðarskyldu og að brjóta á bak aftur mótmæli.
Á meðan heimurinn tekst á við COVID-19 heimsfaraldurinn eykst áhættan fyrir flóttafólk í Grikklandi með hverjum klukkutímanum sem líður. Þúsundir eldra fólks, fólk með undirliggjandi sjúkdóma, óléttar konur og fleiri eru föst í flóttamannabúðum og búa við hættulegar aðstæður. Nú stendur þeim einnig ógn af faraldrinum en afleiðingarnar geta orðið skelfilegar fyrir þá sem þar dvelja.
Ungverska þingið samþykkti ný lög þann 30. mars síðastliðinn sem veita stjórnvöldum umboð til að breyta lögum án þess að fara með þau í gegnum þingið. Í nýju lögunum er ekkert ákvæði um eftirlit, hvenær lögin falla úr gildi eða reglubundna endurskoðun á meðan neyðarástand ríkir.
Aðstæður í samfélaginu eru óvenjulegar og án fordæmis. Áhrifin vegna útbreiðslu COVID-19 má finna hér á landi og um heim allan.
Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu eru Mannréttindaframhaldsskólar ársins 2019 og hlutu nú í febrúar viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í skólakeppni Íslandsdeildar Amnesty International, Mannréttindaframhaldsskóli ársins, sem haldin er árlega í tengslum við herferðina Þitt nafn bjargar lífi.