Afhending undirskrifta til utanríkisráðherra Íslands
Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Þórunn Pálína Jónsdóttir lögfræðingur deildarinnar afhentu Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra ákall með 1630 undirskriftum þann 31. ágúst. Í ákallinu eru íslensk stjórnvöld hvött til þess að beita sér á alþjóðavettvangi til stuðnings kvenréttindum í Afganistan. Þar var sérstaklega nefnt að það verði að eiga samtal við kvenréttindafrömuði og kvenkyns aðgerðasinna frá Afganistan til að fræðast um það hvernig best megi efla kvenréttindi þar í landi, ráðstafa fjármagni í verkefni og starfsemi sem styrkir stöðu kvenréttinda í Afganistan og þegar tækifæri gefast nota samningsstöðu sína við talíbana til að ítreka mikilvægi kvenréttinda.

