Pakistan: Kristið par á dauðadeild fyrir guðlast
Shagufta Kausar og Shafqat Emmanuel eiga yfir höfði sér aftöku fyrir að senda smáskilaboð á klerk sem túlkuð voru sem guðlast. Skilaboðin komu úr síma skráðum á þeirra nafn en parið hefur neitað allri sök. Þau hafa verið í haldi síðan 2013 og voru dæmd til dauða í apríl 2014. Áfrýjun í málinu átti að fara fyrir dómstól í apríl 2020 en var frestað vegna heimsfaraldursins.

