Rússland: Tvær listakonur í haldi
Leikhússtjórinn Evgenia Berkovich og handritshöfundurinn Svetlana Petriychuk voru handteknar að geðþótta þann 5. maí og eru enn í haldi.
Leikhússtjórinn Evgenia Berkovich og handritshöfundurinn Svetlana Petriychuk voru handteknar að geðþótta þann 5. maí og eru enn í haldi.
Tuttugu og þrjú félagasamtök á Íslandi, þar á meðal Íslandsdeild Amnesty International, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila á Íslandi.
Ibrahim Metwaly, mannréttindalögfræðingur og meðstofnandi samtaka fyrir fjölskyldur hinna horfnu í Egyptalandi (e. Families of the Disappeared in Egypt) hefur verið í haldi að geðþótta síðan hann var handtekinn þann 10. september 2017.
Í Tyrklandi hafa gleðigöngur hinsegin fólks verið bannaðar árum saman og réttindabarátta hinsegin fólks stendur höllum fæti. Fólk á rétt á velja hvern það elskar og vera eins og það er án mismununar. Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International stendur með tyrknesku hinsegin fólki og stuðningsfólki þeirra.
Keren-Happuch Aondodoo Akpagher var 14 ára stúlka og nemandi í Premier Academy í Abuja í Nígeríu. Grunur er um að henni hafi verið nauðgað í skólanum en hún dó nokkrum dögum síðar, 22. júní 2021. Krufning bendir til þess að hún hafi látist að völdum sýkingar sem hún fékk í kjölfar nauðgunar.
Amnesty International og stuðningsfólk okkar hefur átt þátt í að bjarga lífum, breyta lögum og vernda mannréttindi það sem af er árinu 2023. Árangur hefur náðst á ýmsum sviðum. Mannréttindasigrar í loftslagsmálum, tækni, fyrir hinsegin réttindi, réttindi flóttafólks, kvenréttindi, gegn dauðarefsingunni ásamt því að fangar sem hafa verið ranglega fangelsaðir hafa verið leystir úr haldi og stjórnvöld dregin til ábyrgðar.
Umhverfisverndarsinninn Angélique Decampe tekur virkan þátt í því að vernda Vohibola-skóginn á Madagaskar.
75 ára spænskur sjálfboðaliði, Mariano García Calatayud, sem sinnti mannúðarstarfi í borginni Kherson í Úkraínu var handtekinn af rússneskum yfirvöldum þann 19. mars 2022.
Mojahed (Abbas) Kourkouri á það á hættu að vera tekinn af lífi. Í byrjun apríl 2023 var tilkynnt að hann hefði verið dæmdur til dauða fyrir „fjandsemi við Guð“, „spillingu á jörðinni“ og „vopnaða uppreisn gegn ríkinu“. Réttarhöld yfir honum voru verulega ósanngjörn og „játningu“ var náð fram með pyndingum.
Helgina 24.-25. júní hélt ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International mannréttindasmiðju fyrir ungt fólk á aldrinum 15 til 18 ára. Í smiðjunni, sem var haldin á Elliðavatnsbæ í Heiðmörk, lærðu þrettán ungmenni um skipulagningu aðgerða í þágu mannréttinda undir leiðsögn Árna Kristjánssonar ungliða- og aðgerðastjóra, Asks Hrafns Hannessonar forseta ungliðahreyfingarinnar og Írisar Bjarkar Ágústsdóttur forseta Háskólafélags Amnesty International.
Tælensk yfirvöld hafa áreitt og sótt börn til saka fyrir að nýta rétt sinn til að mótmæla friðsamlega. Hinsegin aðgerðasinninn Petch (Thanakorn Phiraban) hefur hlotið fangelsisdóm, réttarhöld standa yfir í máli Sand sem er 17 ára gömul og rannsókn stendur yfir í máli yfir Yok (Chan Tonnamphet), 15 ára aðgerðasinna fyrir réttindum frumbyggja í Tælandi.
Pabai Pabai og Paul Kagai, oft nefndir Pabai frændi og Paul frændi, tveir frumbyggjahöfðingjar frá afskekktum eyjum í Guda Maluyligal í Torres-sundi, standa í málaferlum gegn áströlsku ríkistjórninni fyrir að grípa ekki til nægra aðgerða til að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar.