Madagaskar: Umhverfisverndarsinni í hættu
Umhverfisverndarsinninn Angélique Decampe tekur virkan þátt í því að vernda Vohibola-skóginn á Madagaskar.
Umhverfisverndarsinninn Angélique Decampe tekur virkan þátt í því að vernda Vohibola-skóginn á Madagaskar.
75 ára spænskur sjálfboðaliði, Mariano García Calatayud, sem sinnti mannúðarstarfi í borginni Kherson í Úkraínu var handtekinn af rússneskum yfirvöldum þann 19. mars 2022.
Mojahed (Abbas) Kourkouri á það á hættu að vera tekinn af lífi. Í byrjun apríl 2023 var tilkynnt að hann hefði verið dæmdur til dauða fyrir „fjandsemi við Guð“, „spillingu á jörðinni“ og „vopnaða uppreisn gegn ríkinu“. Réttarhöld yfir honum voru verulega ósanngjörn og „játningu“ var náð fram með pyndingum.
Helgina 24.-25. júní hélt ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International mannréttindasmiðju fyrir ungt fólk á aldrinum 15 til 18 ára. Í smiðjunni, sem var haldin á Elliðavatnsbæ í Heiðmörk, lærðu þrettán ungmenni um skipulagningu aðgerða í þágu mannréttinda undir leiðsögn Árna Kristjánssonar ungliða- og aðgerðastjóra, Asks Hrafns Hannessonar forseta ungliðahreyfingarinnar og Írisar Bjarkar Ágústsdóttur forseta Háskólafélags Amnesty International.
Tælensk yfirvöld hafa áreitt og sótt börn til saka fyrir að nýta rétt sinn til að mótmæla friðsamlega. Hinsegin aðgerðasinninn Petch (Thanakorn Phiraban) hefur hlotið fangelsisdóm, réttarhöld standa yfir í máli Sand sem er 17 ára gömul og rannsókn stendur yfir í máli yfir Yok (Chan Tonnamphet), 15 ára aðgerðasinna fyrir réttindum frumbyggja í Tælandi.
Pabai Pabai og Paul Kagai, oft nefndir Pabai frændi og Paul frændi, tveir frumbyggjahöfðingjar frá afskekktum eyjum í Guda Maluyligal í Torres-sundi, standa í málaferlum gegn áströlsku ríkistjórninni fyrir að grípa ekki til nægra aðgerða til að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar.
„Evrópuþingið hefur sent skýr skilaboð þess efnis að það hafi í hyggju að tryggja þeim sem sætt hafa mannréttindabrotum af hálfu fyrirtækja réttlæti“, sagði Hannah Storey, ráðgjafi um stefnumál Amnesty International er varðar mannréttindi og viðskipti þegar Evrópuþingið greiddi atkvæði með tilskipun um ábyrgð fyrirtækja á mannréttindum og umhverfinu.
Stjórnarandstæðingar, aðgerðasinnar, lögfræðingar og viðskiptamenn hafa sætt sakamálarannsóknum í Túnis síðan í febrúar 2023 vegna tilhæfulausra ásakana um samsæri.
Í nóvember 2020 handtóku yfirvöld að geðþótta Guillermo Zárraga, 59 ára gamlan verkfræðing frá Venesúela og fyrrum verkalýðsfélaga innan olíuiðnaðarins.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International stendur fyrir Mannréttindasmiðju í fyrsta sinn síðan heimsfaraldurinn skall á. Markmið smiðjunnar er að gefa ungu fólki sem brennur fyrir mannréttindum vettvang til að efla eigin rödd og tjáningu og vinna saman með skipulögðum og ánægjulegum hætti í þágu mannréttinda.
Þingið í Úganda samþykkti þann 2. maí síðastliðinn frumvarp sem beinist gegn samkynhneigð. Forseti landsins, Yoweri Museveni, hefur til 31. maí til að undirrita frumvarpið, beita neitunarvaldi eða leggja það aftur fyrir þingið.
Amnesty International kallar eftir því að félagslegt öryggi sé tryggt fyrir fólk um heim allan. Ýmsar hörmungar og neyðarástand á heimsvísu sýna að skortur er á félagslegum stuðningi og vernd ríkisvaldsins með þeim afleiðingum að hundruð milljóna líða skort og hungur eða eru föst í fátæktargildru.