1.516 niðurstöður

Raða eftir
  • Afhending undirskrifta til utanríkisráðherra Íslands

    Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Þórunn Pálína Jónsdóttir lögfræðingur deildarinnar afhentu Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra ákall með 1630 undirskriftum þann 31. ágúst. Í ákallinu eru íslensk stjórnvöld hvött til þess að beita sér á alþjóðavettvangi til stuðnings kvenréttindum í Afganistan. Þar var sérstaklega nefnt að það verði að eiga samtal við kvenréttindafrömuði og kvenkyns aðgerðasinna frá Afganistan til að fræðast um það hvernig best megi efla kvenréttindi þar í landi, ráðstafa fjármagni í verkefni og starfsemi sem styrkir stöðu kvenréttinda í Afganistan og þegar tækifæri gefast nota samningsstöðu sína við talíbana til að ítreka mikilvægi kvenréttinda.

  • Íran/Tyrkland: Skotið á fólk á flótta frá Afganistan við landamæri

    Íranskar og tyrkneskar öryggissveitir hafa ítrekað þvingað afganskt fólk til að snúa aftur til Afganistan þegar það reynir að fara yfir landamærin í leit að öryggi. Meðal aðferða er að skjóta í átt að fólkinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International, „They don’t treat us like humans“. Einnig er greint frá fjölda tilfella, einkum á írönskum landamærum, þar sem öryggissveitir skutu á fólk þegar það klifraði yfir veggi eða skreið undir grindverk.

  • Bandaríkin: Leysið fanga frá Guantanamo

    Varðhald um óákveðinn tíma sem bandarísk stjórnvöld hafa beitt í Guantanamo-fangelsinu í kjölfar september 2001 er ólögmætt. Enn eru 19 fangar í haldi þrátt fyrir að búið sé að heimila lausn þeirra. Krefstu þess að ríkisstjórn Joe Biden, Bandaríkjaforseta, loki Guantanamo fangelsinu fyrir fullt og allt.

  • Yfirlýsing vegna fréttatilkynningar um hernaðaraðferðir Úkraínuhers

    Amnesty International harmar að fréttatilkynning um hernaðaraðferðir Úkraínuhers hafi valdið áhyggjum og reiði. Frá því að innrás Rússlands hófst í febrúar 2022 hefur Amnesty International rannsakað og ítrekað greint frá stríðsglæpum og mannréttindabrotum Rússlands í Úkraínu og rætt við hundruð þolenda. Frásagnir þeirra varpa ljósi á grimmilegi veruleika þar í landi vegna ólögmætrar innárásar Rússlands. Amnesty International hefur hvatt heimsbyggðina til að sýna íbúum Úkraínu samstöðu með aðgerðum og því verður sannarlega haldið áfram. 

  • Ný alþjóðleg herferð til varnar fordæmalausri ógn við réttinum til mótmæla á heimsvísu

    Fordæmalaus og vaxandi ógn steðjar að réttinum til að mótmæla um heim allan, að sögn Amnesty International sem ýtir nýrri herferð úr vör í dag til að sporna gegn tilraunum stjórnvalda til að grafa undan þessum grundvallarrétti. Þessi alþjóðlega herferð styður við herferð sem Íslandsdeild Amnesty International hóf í fyrra og ber heitið: Án mótmæla verða engar breytingar.

  • Mannréttindasigrum sem ber að fagna

    Á tímum þegar mannréttindi eru víða fótum troðin í heiminum er auðvelt að missa sjónar á því jákvæða.  Það má ekki gleyma að fagna þeim mannréttindasigrum sem Amnesty International hefur stuðlað að með hjálp stuðningsfólks okkar á fyrstu sex mánuðum ársins. Fólk ranglega í fangelsi hefur verið leyst úr haldi, óréttlátum lögum hefur verið breytt og valdafólk hefur verið dregið til ábyrgðar. Hér eru mannréttindasigrar til að fagna.

  • Kólumbía: Rannsakið morðið á Kevin Agudelo í tengslum við mótmæli

    Rannsaka þarf morðið á Kevin Agudelo sem átti sér stað í aðgerðum lögreglu. Þúsundir fólks fór út á götur í þjóðarverkfalli í mörgum borgum Kólumbíu árið 2021 til að krefjast réttar síns. Viðbrögð stjórnvalda var að ráðast á og refsa þeim einstaklingum sem létu í sér heyra. Flest mannréttindabrot í tengslum við mótmælin áttu sér stað í borginni Cali. 

  • Tansanía: Stöðvið þvingaða brottflutninga Masai-hirðingjasamfélagsins

    Hætta er á þvinguðum brottflutningum Masai-hirðingjasamfélagsins til að greiða leið fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Um 70.000 einstaklingar eru í hættu í kjölfar þess að liðsafli lögreglu og hers kom í bæinn Loliondo í norðurhluta Tansaníu þar sem Masai-fólkið býr. Liðsaflinn kom á svæðið þann 7. júní í þeim tilgangi að taka land af Masai-fólkinu samkvæmt áætlun yfirvalda. Mótmæli hófust tveimur dögum síðar. Yfirvöld beittu táragasi og skotvopnum gegn mótmælendum. 25 einstaklingar voru handteknir og ranglega ákærðir fyrir samsæri um morð á lögreglufulltrúa.