Tyrkland: Formaður læknafélagsins í haldi
Formaður tyrkneska læknafélagsins, prófessorinn Şebnem Korur Fincancı, hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan 27. október 2022 á grundvelli ákæru um „áróður fyrir hryðjuverkasamtök“.
Formaður tyrkneska læknafélagsins, prófessorinn Şebnem Korur Fincancı, hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan 27. október 2022 á grundvelli ákæru um „áróður fyrir hryðjuverkasamtök“.
Yfirvofandi hætta er á að Hussein Abo al-Kheir verði tekinn af lífi fyrir vímuefnabrot. Gert var hlé á aftökum fyrir vímuefnabrot í janúar 2021 eftir að mannréttindanefnd Sádi-Arabíu tilkynnti um opinbert aftökuhlé á slíkum brotum. Yfirvöld Sádi-Arabíu hafa tekið 20 einstaklinga af lífi fyrir vímuefnabrot frá því aftökur hófust á ný þann 10. nóvember 2022.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar ályktun Íslands og Þýskalands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um að stofnuð verði sjálfstæð og óháð rannsóknarnefnd sem safna á upplýsingum og gögnum sem nýst geta til að draga gerendur til ábyrgðar sem hafa brotið á mannréttindum friðsamra mótmælenda í Íran undanfarnar vikur. Ályktunin var lögð fram á sérstökum aukafundi mannréttindaráðsins um hríðversnandi stöðu mannréttinda í Íran.
Jamila og Muhammad Abu Sabha og sex börn þeirra eru á meðal 180 palestínskra fjölskyldna sem eiga á hættu þvingaða brottflutninga frá Masafer Yatta, í suðurhluta Vesturbakkans á hernumdu svæðum Palestínu.
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir beitingu einangrunarvistar gegn börnum í gæsluvarðhaldi í öllum tilfellum. Beiting einangrunarvistar gegn börnum er skýrt brot gegn alþjóðlegum mannréttindalögum og viðmiðum.
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur hótað að refsa leikmönnum sem ætla sér að styðja hinsegin samfélagið með því að bera bönd um handlegginn með skilaboðunum „Ein ást“ (e. One Love). Steve Cockburn hjá Amnesty International hefur þetta til málanna að leggja:
Alaa Abdel Fattah er egypskur-breskur aðgerðasinni og samviskufangi í Egyptalandi. Mohamed Baker er mannréttindalögfræðingur. Þeir voru báðir handteknir þann 29. september 2019. Síðustu níu ár hefur Alaa Abdel Fattah eytt að mestum hluta í haldi að geðþótta vegna gagnrýni á þarlend stjórnvöld. Nú er hann í lífshættu eftir 7 mánuði í hungurverkfalli.
Þitt nafn bjargar lífi er stærsta mannréttindaherferð í heimi. Hún hefur verið haldin árlega frá árinu 2001 í þágu þolenda mannréttindabrota. Herferðin hefur vaxið með árunum og fer nú fram í rúmlega 200 löndum. Í ár verður herferðinni á Íslandi formlega hleypt af stokkunum þann 17. nóvember.
Útvarpsmaðurinn „Giggs“ Edmund Wan, sem hefur verið í haldi í rúma 19 mánuði, var dæmdur í 32 mánaða fangelsi fyrir uppreisnaráróður og peningaþvætti þann 7. október 2022.
Þegar allt virðist á niðurleið í heiminum getur verið niðurdrepandi að lesa fréttirnar. Þá er erfitt ímynda sér að hægt sé breyta heiminum til hins betra. Þitt nafn bjargar lífi, hin árlega alþjóðlega herferð Amnesty International, sýnir að þú getur haft mikil áhrif með lítilli fyrirhöfn. Það eina sem þarf að gera er að skrifa nafn sitt undir tíu mál til stuðnings þolendum mannréttindabrota og krefja þannig stjórnvöld um umbætur. Það er meira að segja hægt að skrifa undir öll málin í einu!
Aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, Agnès Callamard, er stödd á loftslagsráðstefnunni COP27 sem haldin er í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi dagana 6.-18. nóvember. Amnesty International kallar eftir því að leiðtogar heims sýni opinbera samstöðu með þolendum mannréttindabrota í Egyptalandi og þrýsti á egypsk yfirvöld að láta af áralöngum brotum á mannréttindum.
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem þegar hafa fengið stöðu sína viðurkennda í Grikklandi. Deildin harmar hina ómannúðlegu og vanvirðandi meðferð stjórnvalda gagnvart þessum viðkvæma hópi umsækjenda um alþjóðlega vernd sem sviptur var frelsi sínu og þvingaður úr landi aðfaranótt 3. nóvember sl.