Aðgerðakortin komin í hús!
Aðgerðakortin fyrir stærstu, árlegu undirskriftaherferð Amnesty International eru komin í hús og erum við mjög ánægð með útkomuna enda eru þau handhægari og umhverfisvænni en fyrri ár.
Aðgerðakortin fyrir stærstu, árlegu undirskriftaherferð Amnesty International eru komin í hús og erum við mjög ánægð með útkomuna enda eru þau handhægari og umhverfisvænni en fyrri ár.
Tashpolat Tiyip, fyrrum rektor Háskólans í Xinjiang, var dæmdur til dauða eftir leynileg og óréttlát réttarhöld og stendur nú frammi fyrir yfirvofandi aftöku í Kína. Hann hvarf sporlaust árið 2017 og síðan þá hefur hann verið í varðhaldi af geðþótta. Engar upplýsingar hafa verið gefnar upp um sakargiftir, framvindu málsins né staðsetningu hans.
Nú líður að stærsta árlega viðburði Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi (áður Bréf til bjargar lífi). Þá skrifar fjöldi fólks nafn sitt á bréf til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og krefst réttlætis fyrir þolendur. Samtímis munu hundruð þúsunda einstaklinga víða um heim gera slíkt hið sama.
Á alþjóðadegi gegn dauðarefsingunni, 10. október, gefur Amnesty International út skýrslu um dauðarefsinguna í Malasíu: Fatally flawed: Why Malaysia must abolish the death penalty.
Yfirvöld á Kýpur leyfðu Ahmed H, sýrlenskum karlmanni sem var ranglega sakfelldur í Ungverjalandi vegna misbeitingar á hryðjuverkalögum, að sameinast fjölskyldu sinni á ný í lok september.
Þann 17. ágúst var háskólakennarinn Firew Bekele handtekinn og ákærður samkvæmt harkalegum hryðjuverkalögum (e. Anti-Terrorism Proclamation) Eþíópíu. Á seinasta áratug hafa lögin verið notuð til að bæla niður andstöðu. Firew Bekele er ákærður fyrir að skrifa bók sem gagnrýnir forsætisráðherra Eþíópíu, Abiy Ahmeden, enhann neitar að hafa skrifað bókina. Firew Bekele er samviskufangi sem þarf að leysa tafarlaust úr haldi án skilyrða.
Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, hefur biðlað til 30 þúsund skóla víðsvegar í heiminum að nemendum verði leyft að taka þátt í loftslagsverkföllum sem eru án fordæmis og verða haldin 20. og 27. september. Opið bréf var sent til skólayfirvalda í ýmsum löndum, þar á meðal Ástralíu, Kanada, Ungverjalandi, Spáni, Nýja-Sjálandi og Bretlandi.
Đoàn Thị Hồng var handtekin ólöglega í september 2018 og hefur verið í haldi síðan án þess að mál hennar hafi verið tekið fyrir af dómstólum. Fjölskylda Đoàn Thị Hồng fékk ekki að hitta hana fyrr en 4. september 2019, 11 mánuðum eftir að hún var tekin höndum, og tók þá eftir heilsubrestum hjá henni. Við krefjumst þess að yfirvöld leysi Đoàn Thị Hồng úr haldi þar sem hún er samviskufangi og hefur einungis nýtt rétt sinn til tjáningarfrelsis á friðsamlegan hátt.
Mánudaginn 16. september næstkomandi mun Íslandsdeild Amnesty International veita viðurkenningu fyrir forystu í baráttunni gegn loftlagsbreytingum í Bíó Paradís kl. 17:00. Elísabet Jökulsdóttir flytur unga fólkinu hvatningu og tónlistarfólkið GDRN og Flóni flytja nokkur lög. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Ríkisstjórn Bolsonaro forseta Brasilíu hefur heimilað ólöglegar innrásir á landsvæði frumbyggja í Amazon-skógi. Þetta hefur leitt til u.þ.b. 75.000 skógarelda á þessu ári og hótana ólöglegra aðila í garð frumbyggja á svæðinu.
Amnesty International þrýstir á TripAdvisor að taka út skráningar á síðu sinni á ferðamannastöðum á landtökusvæðum Ísraels. Landtökusvæði Ísraela á hernumdu svæðum Palestínu eru ólögleg og valda þjáningum Palestínubúa. Hvað eru hernumdu svæði Palestínu, hvers vegna eru landtökusvæði Ísraela ólögleg og hvaða þjáningum valda þau?
Tveir menn, Gökhan Türkmen og Mustafa Yılmaz, hurfu sporlaust í febrúar á þessu ári. Grunur leikur á að um þvingað mannhvarf sé að ræða en yfirvöld hafa til þessa neitað að þeir séu í haldi þeirra. Þann 29. júlí birtust á ný fjórir menn, sem einnig hafði verið saknað síðan í febrúar, en þeir höfðu verið í haldi hryðjuverkadeildar lögreglunnar í höfuðstöðvum hennar í Ankara. Báðir mennirnir sem enn er saknað eru opinberir starfsmenn sem reknir voru samkvæmt tilskipun ríkisstjórnarinnar í kjölfar valdaránstilraunarinnar í Tyrklandi árið 2016.