Umsögn um drög að frumvarpi til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn
Frelsissvipting felur ávallt í sér alvarlegt inngrip í líf einstaklings og hefur víðtæk áhrif á mannréttindi hans. Ströng skilyrði gilda um það hvenær heimilt sé að svipta einstakling frelsi sínu og er ákvæði þar að lútandi að finna bæði í stjórnarskrá og almennum lögum sem og helstu mannréttindasáttmálum sem Ísland er aðili að. Í því samhengi er vert að vekja sérstaka athygli á b-lið 1. mgr. 14. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) þar sem skýlaust bann er lagt við fötlun sé nýtt til að réttlæta frelsissviptingu.

