Fjölmiðlakonan Georgia Fort fjallaði ásamt öðru fjölmiðlafólki um mótmæli sem fóru fram 18. janúar 2026 í kirkju í Minnesota. Einn prestanna þar var svæðisstjóri Innflytjenda- og tollgæslustofnunar Bandaríkjanna (e. US Immigration and Customs Enforcement – ICE)
Fort og annað fjölmiðlafólk eiga yfir höfði sér alvarlegar ákærur af hálfu bandarískra yfirvalda fyrir þessa fréttaumfjöllun, þar á meðal fyrir hatursglæp.
Frá janúar 2025 hefur fjölmiðlafólk í auknum mæli orðið fyrir árásum og þrýstingi vegna umfjöllunar sinnar um aðgerðir stjórnvalda. Tilgangur þessara ákæra er að ógna og þagga niður í fjölmiðlafólki.
SMS-félagar Amnesty krefjast þess að yfirvöld falli tafarlaust frá öllum ákærum á hendur Georgia Fort og öðru fjölmiðlafólki.

