Egypski ríkisborgarinn Said Abdelrazek var handtekinn af öryggissveitum egypska ríkisins 15. júlí 2025 á heimili hans í Kaíró. Said hafði áður tekið upp kristna trú.
Eftir níu mánaða gæsluvarðhald að geðþótta var Said ákærður á fyrsta dómstigi í Badr, vegna trúskipta sinna og trúarskoðana. Fyrsta þinghald í máli hans fór fram 21. apríl 2026 og var málinu frestað til 15. júní 2026. Said er nú í haldi í Ramadan-fangelsinu, þar sem vaxandi áhyggjur eru af heilsu hans.
SMS-félagar krefjast þess að egypsk stjórnvöld leysi Said Abdelrazek tafarlaust og skilyrðislaust úr haldi, þar sem hann er einungis í haldi fyrir að nýta rétt sinn til trúfrelsis og skoðanafrelsis.

