SMS

8. júlí 2022

Egypta­land: Réttað yfir hjónum í neyð­ar­rétti

Aisha el-Shater, 41 árs dóttir leið­toga Múslímska bræðra­lagsins (Muslim Brot­her­hood), og eigin­maður hennar Mohamed Abo Horeira hafa verið í haldi í rúm þrjú og hálft ár vegna fjöl­skyldu­tengsla við bræðra­lagið og fyrir að nýta mann­rétt­indi sín með frið­sam­legum hætti. Mál þeirra er fyrir neyð­ar­rétti vegna falskra ákæra.

Aisha el-Shater var hald í langvar­andi einangrun, hún hefur ekki fengið fjöl­skylduheim­sóknir í meira en þrjú og hálft ár og  henni er meinað um viðeigandi heilbrigð­is­þjón­ustu þrátt fyrir að þurfa lífs­nauð­syn­lega á því að halda. Þessi meðferð eru pynd­ingar samkvæmt alþjóða­lögum. 

Hjónin voru hand­tekin þann 1. nóvember 2018. Sama dag hand­tóku stjórn­völd í Egyptalandi að minnsta kosti 31 mann­rétt­inda­sinna og lögfræð­inga, 10 konur og 21 karlmann. Undan­farna mánuði hafa póli­tískir andstæð­ingar og gagn­rýn­endur ríkis­stjórn­ar­innar verið sakfelldir á grund­velli falskra ákæra í kjölfar ósann­gjarnra réttarhalda.  

Khairar el Shater, faðir Aisha el Shater, hefur verið í fang­elsi frá júlí 2013 þegar herinn steypti þáver­andi forseta af stól, Mohamed Morsi. Í kjöl­farið bannaði yfir­völd Múslímska bræðra­lagið og saksótti fjölda meðlima og stuðn­ings­aðila bræðra­lagsins. 

Sms-félagar krefjast þess að Aisha el Shater og Mohamed Abo Horeira verði skil­yrð­is­laust leyst úr haldi án tafar og að allar ákærur á hendur þeim verði felldar niður. Á meðan þau eru í fang­elsi er farið fram á að þau fái að vera í reglu­legum samskiptum við fjöl­skyldu sína og lögfræðing ásamt því að þau fái aðgengi að viðeig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu.  

Lestu einnig