Tryggja þarf að HM í fótbolta sé fögnuður fyrir alla aðila

Koma þarf í veg fyrir árásir á réttindi og takmarkanir á frelsi á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst um miðjan júní. Tryggja þarf að HM sé fögnuður fyrir alla aðila.  

Fögnuður í stað ótta

Fjórða hvert ár sameinast milljónir um heim allan frá ólíkum menningarheimum til að njóta fótbolta. Heimsmeistaramótið er fögnuður fyrir ólíka hópa, sama hvaðan fólk kemur,  eða hvern það elskar. 

Hætta er á að fögnuðurinn breytist í martröð. Nú þegar styttist í mótið hafa yfirvöld í löndunum sem halda mótið (Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada) herjað á innflytjendur, sett takmarkanir á mótmæli og ýtt jaðarhópum til hliðar

  • Í Bandaríkjunum árið 2025 vísaði ríkisstjórn Trumps hálfri milljón úr landi, rúmlega sexfalt meira en fjöldi þeirra sem munu mæta á leikvanga heimsmeistaramótsins. Fulltrúar innflytjendayfirvalda hafa jafnvel drepið fólk.
  • Í Mexíkó hefur herinn verið settur í viðbragðsstöðu sem setur friðsamlega mótmælendur í hættu.
  • Í Kanada hefur heimilislaust fólk sætt frekari jaðarsetningu.
  • Í öllum þremur löndunum er hætta á að hinsegin fótboltaaðdáendur sæti mismunun, ofbeldi og áreitni.

Fótboltaaðdáendur og nærsamfélög þar sem mótið er haldið verða að fá fullt frelsi til að fagna. Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur lofað því að mótið verði öruggt, inngildandi og að fólk njóti réttinda sinna en hætta er á að svo verði ekki.

Hvað getur þú gert?

Skrifaðu undir og kallaðu eftir því að forseti FIFA, Gianni Infantino, og yfirvöld í löndunum sem halda mótið leyfi friðsamleg mótmæli, bindi enda á fjöldahandtökur og brottvísanir og verndi fólk gegn mismunun.

Ítarefni

Alþjóðlegt: FIFA og HM-gestgjafar verða að tryggja öryggi á HM

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.