Taktu þátt í Þitt nafn bjargar lífi á skrifstofu Amnesty
Þriðjudaginn 10. desember býður Íslandsdeild Amnesty International félaga og gesti velkomna á skrifstofu deildarinnar í Þingholtsstræti 27 til þátttöku í Þitt nafn bjargar lífi.
Þriðjudaginn 10. desember býður Íslandsdeild Amnesty International félaga og gesti velkomna á skrifstofu deildarinnar í Þingholtsstræti 27 til þátttöku í Þitt nafn bjargar lífi.
Fjöldi fólks lagði leið sína í Hörpu fimmtudaginn 21. nóvember síðastliðinn til að ljá mannréttindabaráttunni nafn sitt og upplifa tilkomumikla gagnvirka ljósainnsetningu sem hönnuð var til að vekja athygli á árlegri, alþjóðlegri herferð Amnesty International. Innsetningin hefur nú verið flutt úr Hörpu í Kringluna.
Umræðan um loftslagsmálin hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum. Rödd Amnesty International hefur verið æ háværari í baráttunni gegn loftslagsbreytingum þar sem afleiðingar þessara breytinga hafa bein áhrif á mannréttindi fólks um allan heim.
Aðgerðakortin fyrir stærstu, árlegu undirskriftaherferð Amnesty International eru komin í hús og erum við mjög ánægð með útkomuna enda eru þau handhægari og umhverfisvænni en fyrri ár.
Nú líður að stærsta árlega viðburði Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi (áður Bréf til bjargar lífi). Þá skrifar fjöldi fólks nafn sitt á bréf til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og krefst réttlætis fyrir þolendur. Samtímis munu hundruð þúsunda einstaklinga víða um heim gera slíkt hið sama.
Mánudaginn 16. september næstkomandi mun Íslandsdeild Amnesty International veita viðurkenningu fyrir forystu í baráttunni gegn loftlagsbreytingum í Bíó Paradís kl. 17:00. Elísabet Jökulsdóttir flytur unga fólkinu hvatningu og tónlistarfólkið GDRN og Flóni flytja nokkur lög. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Aðalframkvæmdarstjóri Amnesty International, Kumi Naidoo, var staddur hér á landi síðastliðinn föstudag fram til þriðjudags. Margt dreif á daga hans hér á Íslandi en síðastliðinn laugardag tók hann þátt í Reykjavík Pride með ungliðahreyfingu Íslandsdeildarinnar, var viðstaddur afhjúpunar minnisvarða um jökulinn Ok á sunnudaginn, hitti Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra Íslands og stóð að lokum fyrir hádegisumræðum á skrifstofu Íslandsdeildarinnar á mánudaginn.
Næstkomandi mánudag 19. ágúst kl.13:00 munu fara fram hádegisumræður með aðalframkvæmdastjóra Amnesty International, Kumi Naidoo, á skrifstofu Íslandsdeildarinnar. Ræddar verða helstu áskoranir í mannréttindabaráttunni fyrir alla.
Íslandsdeild Amnesty International tekur þátt í Gleðigöngunni Reykjavík Pride laugardaginn 17. ágúst, fyrir fólk sem hefur ekki frelsi til að elska eða vera það sjálft án þess að líf þess sé í hættu.
Þann 30. júlí sl. birtist pistill í Fréttablaðinu og á Vísi.is eftir Hilary Power, talsmann Amnesty International, Lailu Matar, fulltrúa Mannréttindavaktarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum, og Rosanno Ocampo, dagskrárfulltrúa og tengilið FORUM ASIA hjá Sameinuðu þjóðunum. Efni pistilsins varðaði ályktun Íslands í Mannréttindaráði SÞ um mannréttindaástandið á Filippseyjum. Íslandsdeild Amnesty International birtir pistilinn einnig hér:
Dagana 13. – 17. júlí sóttu þær Þórkatla Haraldsdóttir og Arndís Ósk Magnúsdóttir ráðstefnuna European Youth Meeting (EYM) fyrir hönd Íslandsdeildar Amnesty International.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á Menningarnótt, þann 24. ágúst næstkomandi.