Reykjavíkurmaraþon 2019
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á Menningarnótt, þann 24. ágúst næstkomandi.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á Menningarnótt, þann 24. ágúst næstkomandi.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar ályktun Íslands í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna vegna stöðu mannréttinda á Filippseyjum. Þetta er í fyrsta skipti í sögu ráðsins sem lögð er fram ályktun um Filippseyjar. Íslensk stjórnvöld sýndu ábyrgð í verki með því að leggja fram ályktunina og þar með fylgja eftir frumkvæði í gagnrýni sinni á filippseysk stjórnvöld.
Laugardaginn 13. júlí stendur ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International fyrir Mannréttindamaraþoni. Farin verður um fimm kílómetra löng leið á milli 5 sendiráða í miðborg Reykjavíkur. Við hvert sendiráð verða sjálfboðaliðar frá ungliðahreyfingunni og þar munu hlauparar skrifa undir mál sem snúa að löndum sendiráðanna og hafa þannig áhrif á mannréttindabaráttuna.
Í dag, þann 4. júlí 2019, sendi ungliðahreyfing Amnesty International ásamt ungmennaráði UNICEF á Íslandi, ungmennaráði Barnaheilla og ráðgjafarhóps Umboðsmanns barna frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna brottvísana barna á flótta aftur til Grikklands. Ungmennaráðin skora á yfirvöld að grípa til aðgerða og vernda börn á flótta eins og þeim ber skylda til, sama hvað það kostar.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar löngu tímabærum lögum um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi í dag. Lögin eru gríðarlega mikilvægt skref í átt að koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks og að tryggja rétt þess bæði í lögum og framkvæmd.
Formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Páll Magnússon, tók í dag á móti ákalli Íslandsdeildar Amnesty International um verndun mannréttinda intersex barna á Íslandi ásamt 3252 undirskriftum einstaklinga víðsvegar að úr heiminum meðal annars frá Þýskalandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum.
Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn á Laugum eru Mannréttindaframhaldsskólar ársins 2018 og Háteigsskóli og Alþjóðaskólinn á Íslandi eru Mannréttindagrunnskólar ársins 2018.
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2018 er komin út og verður kynnt á aðalfundi í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, fimmtudaginn 21.mars 2019 kl. 20:00.
Aðalfundur Amnesty International verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 21,mars 2019 kl. 20:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Réttindi kvenna og stúlkna er stór þáttur í starfi Amnesty International. Hér eru fimm sigrar í málefnum sem Amnesty International hefur barist fyrir ásamt mörgum aðgerðasinnum úr ýmsum grasrótarhreyfingum.
Ert þú á aldrinum 16-24 ára og hefur áhuga á að leggja mannréttindabaráttunni lið?
Í niðurstöðum nýrrar skýrslu Amnesty International, No Shame in Diversity: The right to health for people with variations of sex characteristics in Iceland, kemur fram að þegar einstaklingar með ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni og fjölskyldur þeirra leita eftir þjónustu í íslenska heilbrigðiskerfinu þá dregur skortur á skýru mannréttindamiðuðu verklagi og þverfaglegri nálgun, ásamt ónógum félagslegum stuðningi, úr möguleikum þeirra til að njóta líkamlegrar og andlegrar heilsu að hæsta marki sem unnt er.