Venesúela: Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa
Undanfarinn áratug hefur Amnesty International skrásett beitingu varðhaldsvistunar að geðþótta í Venesúela. Aðgerðirnar eru hluti kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro.
Undanfarinn áratug hefur Amnesty International skrásett beitingu varðhaldsvistunar að geðþótta í Venesúela. Aðgerðirnar eru hluti kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro.
Amnesty supporters are making the world a fairer place. Because of the actions of individuals, lives have been saved, unfair laws have changed, the wrongfully imprisoned have been released.
Andófsmaðurinn og rapparinn, Toomaj Salehi, á það á hættu á að vera tekinn af lífi. Dómstóll í Esfahan í Íran dæmdi hann til dauða í apríl síðastliðinn fyrir það eitt að taka þátt í uppreisninni „Konur, Líf, Frelsi “ og birta færslur á samfélagsmiðlum þar sem yfirvöld í Íran voru gagnrýnd.
Fjöldi aftaka rauk upp árið 2023 en á árinu var fjöldi aftaka sá mesti í næstum áratug. Ástæðan er veruleg aukning í Miðausturlöndum. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar á heimsvísu árið 2023. Í heildina fóru fram 1.153 aftökur á árinu að undanskildum þeim aftökum sem áttu sér stað í Kína sem eru taldar skipta þúsundum. Þetta er rúmlega 30% aukning frá árinu 2022.
Á síðastliðnu ári var Norræna ungliðaráð Amnesty International stofnað og í því sitja tveir ungliðar frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Markmið ungliðaráðsins er að gefa ungu fólki vettvang til að kynnast hvert öðru, efla leiðtogahæfileika sína og hafa áhrif á mannréttindastarf Amnesty International á Norðurlöndunum.
Götukynnar Íslandsdeildar Amnesty International hafa nú hafið störf til að kynna starf samtakanna og bjóða áhugasömum vegfarendum að gerast Vonarljós. Vonarljós eru mánaðarlegir styrktaraðilar samtakanna og tákn um von fyrir þolendur mannréttindabrota. Kjarni starfs Amnesty International felst í að berjast gegn mannréttindabrotum um heim allan.
Okkar árlega og alþjóðlega herferð, Þitt nafn bjargar lífi, fór fram í lok árs 2023 líkt og fyrri ár. Herferðin gekk vel á Íslandi sem og um heim allan. Vakin var athygli á tíu málum þolenda mannréttindabrota víðs vegar um heiminn. Á Íslandi söfnuðust yfir 50 þúsund undirskriftir og stuðningskveðjur. Á heimsvísu var gripið til 5.828.323 aðgerða fyrir málin tíu með ýmsum hætti í 63 löndum. Það eru 500 þúsund fleiri aðgerðir en árið áður.
Anar Mammadli, mannréttindafrömuður og loftslagsaðgerðasinni, var handtekinn þann 29. apríl síðastliðinn af yfirvöldum í Aserbaísjan. Ákærur á hendur honum eru uppspunnar sem hluti af herferð stjórnvalda gegn aðgerðasinnum.
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur. Deildin harmar þá ómannúðlegu og vanvirðandi meðferð stjórnvalda á þeim viðkvæma og sérstaka hópi umsækjenda sem sviptur var frelsi sínu og þvingaður var úr landi aðfaranótt 14. maí sl. Íslandsdeildin hefur ítrekað gagnrýnt brottvísanir viðkvæmra hópa og harðneskjulega stefnu íslenskra stjórnvalda í málum einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Leonela Moncayo er umhverfissinni frá Amazon-skóginum í Ekvador og ein af níu stúlkum sem fóru í mál við stjórnvöld þar í landi og kröfðust lögbanns á gasbruna í nágrenni við heimili þeirra á þeim grundvelli að brotið sé á mannréttindum þeirra. Héraðsdómstóll úrskurðaði stúlkunum í hag en þrátt fyrir það eru enn gasbrunar á svæðinu.