Vefverslun
Styrktu mannréttindastarf Íslandsdeildar Amnesty International með vörukaupum.
Styrktu mannréttindastarf Íslandsdeildar Amnesty International með vörukaupum.
Aukin áhersla á betrun, sáttamiðlun og samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræði er kærkomin og mikilvæg fyrir ungt fólk sem hefur misstigið sig og komist í kast við lögin. Telur Amnesty International það ákaflega jákvætt að ungir brotamenn fái að afplána óskilorðsbundna dóma með samfélagsþjónustu.
Íslandsdeild Amnesty International styður frumvarpið heilshugar. Tryggja þarf að börn og fullorðnir með ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni njóti mannréttindaverndar, að börn með ódæmigerð kyneinkenni sæti ekki skaðlegum og ónauðsynlegum inngripum og að trans fólk geti fengið lagalega viðurkenningu á kyni sem byggist á sjálfsákvörðunarrétti. Veita á einstaklingum leyfi til að breyta nafni sínu og kynskráningu lagalega, þar með talið á opinberum gögnum sem útgefin eru af ríkinu, á skjótan, aðgengilegan og gagnsæjan máta og í samræmi við kynvitund einstaklingsins.
Íslandsdeild Amnesty International vísar til erindis nefndasviðs Alþingis, dags. 19. september 2024, þar sem deildinni var gefið tækifæri á að gefa allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (afnám þjónustusviptingar). Deildin fagnar frumvarpinu og ítrekar fyrri afstöðu og athugasemdir þegar samhljóma frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi.
Vegna harðnandi átaka milli Ísraels og Hezbollah vill Amnesty International koma því á framfæri að gífurlegt mannfall í Líbanon frá því í síðustu viku er áminning um mikilvægi þess að allir stríðsaðilar framfylgi skyldum sínum í samræmi við alþjóðleg mannúðarlög.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkomnum drögum að þingsályktunartillögu í málefnum innflytjenda. Gríðarlegar breytingar eiga sér stað jafnt og þétt í málaflokki um innflytjendur og flóttafólk. Því er mikilvægt að þróa innviði í takt við þær. Deildin fagnar þeim skrefum sem tekin eru til þess að bæta úr aðstæðum innflytjenda og flóttafólks hér á landi og að þeim verði tryggð lögbundin mannréttindi.
Yfirvöld og fyrirtæki eru óðum að þróa vopn með aukinni sjálfstýringu þar sem ný tækni og gervigreind eru notuð. Drónar og önnur háþróuð vopn eru þróuð til að taka ákvarðanir og velja skotmörk án atbeina nokkurrar manneskju. Slík “drápsvélmenni” gætu verið notuð í átökum, við löggæslu eða landamæravörslu.
Öryggisfyrirtækið Internal Security Agency (ISA) handtók aðgerðasinnann og bloggarann Maryam Masnour al-Warfalli þann 13. janúar 2024 í Líbíu.
Taktu þátt og skrifaðu undir 10 áríðandi mál einstaklinga sem beittir eru alvarlegum órétti. Þannig söfnum við milljónum undirskrifta og mögnum saman þrýsting á stjórnvöld víða um heim sem brjóta mannréttindi.
Hægt er að arfleiða hluta eigna sinna til Íslandsdeildar Amnesty International.
Íslandsdeild Amnesty International fagnaði um helgina að 50 ár eru liðin frá stofnun deildarinnar þann 15. september 1974. Til að fagna þessum áfanga voru haldnir þrír viðburðir helgina 13-15. september. Fyrsti viðburðurinn var í Norræna húsinu föstudaginn 13. september þar sem var haldið málþing í hádeginu. Á laugardeginum 14. september var stuðningsaðgerð og mannréttindajóga á Austurvelli fyrir baráttukonu fyrir kvenréttindum sem er í fangelsi í Sádi-Arabíu. Sjálf afmælisveislan var á sunnudeginum 15. september þar sem var fagnað með skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju sem endaði í menningarhúsinu Iðnó í veisluhöldum.
Hægt er að skrá sig í ungliðahreyfinguna eða í hóp aðgerðasinna til að fræðast um mannréttindi og vekja athygli á þeim mannréttindabrotum sem eiga sér stað um heim allan. Hafðu áhrif!