Srí Lanka/Sádi-Arabía: Farandverkakonur í haldi í marga mánuði
Að minnsta kosti 41 kona frá Srí Lanka hefur verið í haldi í Sádi–Arabíu í allt að 18 mánuði. Þrjár konur eru með ung börn með sér og ein kona þarf nauðsynlega á læknisþjónustu að halda. Engin þeirra hefur verið upplýst um ákærur gegn þeim né hafa þær fengið lagalega aðstoð.

