Ársskýrsla: Tvískinnungur í viðbrögðum Vesturveldanna við mannréttindabrotum
Allherjarinnrás Rússlands í Úkraínu árið 2022 leiddi af sér fjölda stríðsglæpa, orsakaði orku- og matvælakrísu á heimsvísu og gróf enn frekar undan veikbyggðu fjölþjóðakerfi. Innrásin afhjúpaði jafnframt hræsni vestrænna ríkja sem brugðust hart við árás Rússlands en létu óátalin eða voru samsek um gróf mannréttindabrot annars staðar. Þetta kemur meðal annars fram í ársskýrslu Amnesty International um stöðu mannréttindamála í heiminum.

