Umsögn um frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands
Íslandsdeild Amnesty International fagnar frumvarpi til laga um Mannréttindastofnun Íslands. Samtökin hvetja til þess að lagasetningunni verði komið á sem fyrst og minna á að á íslenskum stjórnvöldum hvílir þjóðréttarleg skylda til að setja á fót mannréttindastofnun sem uppfyllir Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna.

