Rússland: Stöðvið árásir í Úkraínu
Hörmungar og mannréttindaneyð dynur á Úkraínubúum. Fólk lætur lífið, þar á meðal börn og líf fleiri þúsunda eru í hættu. Krefstu þess að rússnesk yfirvöld stöðvi þessa árás og verndi almenna borgara núna strax!
Hörmungar og mannréttindaneyð dynur á Úkraínubúum. Fólk lætur lífið, þar á meðal börn og líf fleiri þúsunda eru í hættu. Krefstu þess að rússnesk yfirvöld stöðvi þessa árás og verndi almenna borgara núna strax!
Þúsundir einstaklinga hafa flúið Úkraínu í leit að öryggi í nágrannalöndum eftir innrás Rússlands. Búist er við að fleiri flýi á næstu dögum.
Stjórnvöld í Singapúr eru reiðubúin að hefja aftökur að nýju eftir tveggja ára hlé vegna kórónuveirufaraldursins. Einstaklingar sem dæmdir hafa verið til dauða í tengslum við vímuefnaglæpi eiga yfir höfði sér aftöku. Dauðadómur vegna vímuefnabrota, sem er lögbundinn í Singapúr, stangast á við alþjóðalög. Hæstiréttur landsins hefur fengið formlega beiðni um að stöðva aftökurnar.
Í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu í dag þann 24. febrúar kallar Amnesty International eftir því að alþjóðleg mannréttinda- og mannúðarlög verði virt í einu og öllu. Amnesty International heldur áfram að fylgjast grannt með stöðunni og fletta ofan af mannréttindabrotum allra aðila á alþjóðlegum lögum.
Heilsa Dr. Abduljalil al-Singace er í hættu en hann er á sjöunda mánuði hungurverkfalls. Á sama tíma hefur hann ekki fengið að tala við fjölskyldu sína frá því í nóvember 2021. Dr. Abduljalil al-Singace er aðgerðasinni og fræðimaður frá Barein en hann hefur setið í fangelsi í áratug fyrir friðsæla þátttöku í uppreisninni í Barein árið 2011.
„Eftir nokkurra vikna árangurslausar samningaviðræður verður nú að setja öryggi almennings í Úkraínu í algjöran forgang. Blákaldur raunveruleikinn er sá að líkur eru á vopnuðum átökum. En gera verður allt til að minnka líkur á að almennir borgarar þjáist og forgangsraða verður mannúð í þessu hættuástandi. Það er lagaleg skylda allra aðila,“
Zahra Sedighi-Hamadani er kynsegin aðgerðasinni og hefur verið í haldi yfirvalda síðan í október 2021 vegna kynhneigðar og kynvitundar sinnar og fyrir að verja réttindi hinsegin fólks á samfélagsmiðlum. Hún hefur sætt illri meðferð.
Dagana 22. janúar – 3. febrúar fór fram listaverkauppboð á vef Gallerí Fold þar sem allur ágóði rann til Amnesty International.
Milljónir Palestínubúa búa við kerfisbundna aðskilnaðarstefnu Ísraela og með þessu grimmilega og fordómafulla kerfi er komið í veg fyrir að Palestínubúar eignist heimili.
Það verður að draga ísraelsk yfirvöld til ábyrgðar fyrir aðskilnaðarstefnu þeirra gegn palestínsku fólki, segir í nýrri skýrslu Amnesty International. Aðskilnaðarstefnan er glæpur. Skýrslan greinir frá kerfisbundinni kúgun og yfirráðum Ísraels yfir palestínsku fólki hvar sem mögulegt er að hafa stjórn á réttindum þess. Þetta á við um palestínskt fólk sem býr í Ísrael, á hernumdu svæðum Palestínu og palestínskt flóttafólk í öðrum löndum.
Fleiri en hundrað einstaklingar eru í haldi að geðþótta fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið og koma saman friðsamlega. Í Kamerún er herjað á fylgjendur stjórnarandstöðunnar, baráttufólk fyrir mannréttindum, mótmælendur og annað baráttufólk.
Baráttukonan Atena Daemi er laus úr haldi! Mál hennar var partur af herferðinni Þitt nafn bjargar lífi 2018.