Bærinn Izium hefur sætt stanslausum árásum
Almennir borgarar í bænum Izium í austur-Úkraínu upplifa mannúðarhrylling þar sem rússneskar hersveitir varpa sprengjum á bæinn linnulaust. Þetta kemur fram í nýjum gögnum frá Amnesty International.
Almennir borgarar í bænum Izium í austur-Úkraínu upplifa mannúðarhrylling þar sem rússneskar hersveitir varpa sprengjum á bæinn linnulaust. Þetta kemur fram í nýjum gögnum frá Amnesty International.
Nazanin Zaghari-Ratcliffe og Anoosheh Ashoori hafa verið leyst úr haldi í Íran. Þau eru bæði bresk-írönsk og eru komin aftur til Bretlands. Samanlagt voru þau rúm tíu ár í fangelsi eftir óréttmæta handtöku. Amnesty International fagnar þessum fréttum þótt fyrr hefði verið.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á Norrænu ungliðaráðstefnuna sem í ár verður haldin í Finnlandi. Umsóknarfrestur er til 2. maí, 2022.Norræna ungliðaráðstefnan, Nordic Youth Conference, er árleg ráðstefna fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára frá Finnlandi, Noregi, Danmörk, Íslandi og Færeyjum. Ár hvert hittast um fimmtíu ungliðar og læra um mannréttindi og aðgerðastarf. Í ár verður ráðstefnan haldin í Tuusula í Finnlandi, sem er í nágrenni Helsinki, dagana 27. júní til 1. júlí.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn miðvikudaginn 23. mars 2022 kl. 17 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð. Einnig verður honum streymt.
Amnesty International telur innrás Rússlands í Úkraínu greinilegt brot gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta er árás á yfirráðasvæði sjálfstæðs ríkis og er glæpur samkvæmt alþjóðalögum. Samtökin kalla eftir því að allir hlutaðeigandi verði dregnir til ábyrgðar fyrir aðild sína í innrásinni og þá glæpi sem hafa verið framdir í kjölfar hennar.
Hörmungar og mannréttindaneyð dynur á Úkraínubúum. Fólk lætur lífið, þar á meðal börn og líf fleiri þúsunda eru í hættu. Krefstu þess að rússnesk yfirvöld stöðvi þessa árás og verndi almenna borgara núna strax!
Þúsundir einstaklinga hafa flúið Úkraínu í leit að öryggi í nágrannalöndum eftir innrás Rússlands. Búist er við að fleiri flýi á næstu dögum.
Stjórnvöld í Singapúr eru reiðubúin að hefja aftökur að nýju eftir tveggja ára hlé vegna kórónuveirufaraldursins. Einstaklingar sem dæmdir hafa verið til dauða í tengslum við vímuefnaglæpi eiga yfir höfði sér aftöku. Dauðadómur vegna vímuefnabrota, sem er lögbundinn í Singapúr, stangast á við alþjóðalög. Hæstiréttur landsins hefur fengið formlega beiðni um að stöðva aftökurnar.
Í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu í dag þann 24. febrúar kallar Amnesty International eftir því að alþjóðleg mannréttinda- og mannúðarlög verði virt í einu og öllu. Amnesty International heldur áfram að fylgjast grannt með stöðunni og fletta ofan af mannréttindabrotum allra aðila á alþjóðlegum lögum.
Heilsa Dr. Abduljalil al-Singace er í hættu en hann er á sjöunda mánuði hungurverkfalls. Á sama tíma hefur hann ekki fengið að tala við fjölskyldu sína frá því í nóvember 2021. Dr. Abduljalil al-Singace er aðgerðasinni og fræðimaður frá Barein en hann hefur setið í fangelsi í áratug fyrir friðsæla þátttöku í uppreisninni í Barein árið 2011.
„Eftir nokkurra vikna árangurslausar samningaviðræður verður nú að setja öryggi almennings í Úkraínu í algjöran forgang. Blákaldur raunveruleikinn er sá að líkur eru á vopnuðum átökum. En gera verður allt til að minnka líkur á að almennir borgarar þjáist og forgangsraða verður mannúð í þessu hættuástandi. Það er lagaleg skylda allra aðila,“
Zahra Sedighi-Hamadani er kynsegin aðgerðasinni og hefur verið í haldi yfirvalda síðan í október 2021 vegna kynhneigðar og kynvitundar sinnar og fyrir að verja réttindi hinsegin fólks á samfélagsmiðlum. Hún hefur sætt illri meðferð.