Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International 2023
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn þriðjudaginn 21. mars 2023 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn þriðjudaginn 21. mars 2023 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Sakfelling mannréttindasinnans Rida Benotmane frá því í nóvember á síðasta ári var staðfest af áfrýjunardómstóli í Marokkó þann 20. febrúar.
Íslandsdeild Amnesty International hvetur stjórnvöld til að gæta þess að notkun stafrænnar tækni til að hafa eftirlit með einstaklingum og íbúum sé í samræmi við alþjóðalög um mannréttindi. Tæknin getur og ætti að gegna mikilvægu hlutverki í aðgerðum ríkja til að bjarga mannslífum og hlúa að öryggi borgara. Auknar heimildir ríkisins til eftirlits getur þó ógnað friðhelgi einkalífs, tjáningarfrelsi og félagafrelsi á þann hátt að það getur brotið á mannréttindum og rýrt traust til yfirvalda og þannig jafnvel grafið undan áhrifum viðbragða af hálfu yfirvalda er varða öryggi almennings. Slíkar ráðstafanir hafa einnig í för með sér hættu á mismunun og geta skaðað jaðarsetta hópa umfram aðra hópa.
Baráttukonan Vanessa Mendoza Cortés gæti bráðlega þurft að koma fyrir rétt þar sem hún talaði fyrir réttindum kvenna í Andorra, þar á meðal réttindum til þungunarrofs, á vettvangi Sameinuðu þjóðanna árið 2019. Hún á yfir höfði sér háa sekt og að vera sett á sakaskrá verði hún fundin sek.
Alþjóðasamfélagið verður að þróa áætlun um það hvernig hægt sé að ná fram réttlæti fyrir þolendur innrásar Rússlands í Úkraínu, segir Amnesty International nú þegar eitt ár er liðið frá innrásinni. Á þessum degi fyrir ári síðan, þann 24. febrúar, réðst rússneski herinn með fullum þunga inn í Úkraínu, aðgerð sem Amnesty International skilgreinir sem glæp gegn friði og mannréttindakrísu.
Morris Mabior Awikjok Bak, gagnrýnandi stjórnvalda í Suður-Súdan, var handtekinn að geðþótta þann 4. febrúar sl. í Naíróbí, höfuðborg Kenýa, þar sem hann býr.
Tælensk yfirvöld hafa handtekið, saksótt, haft eftirlit með og ógnað börnum vegna þátttöku þeirra í fjöldamótmælum. Amnesty International kallar eftir því að allar ákærur á hendur þeim verði felldar niður og hætt verði að herja á börn til að hindra að þau taki þátt í mótmælum. Ný skýrsla Amnesty International, „We are Reclaiming Our Future“ er byggð á viðtölum við 30 börn víðs vegar að í Tælandi sem tóku þátt í fjöldamótmælum á árunum 2020 til 2022.
Yfirvöld í Tælandi þagga ítrekað niður í friðsömum mótmælendum. Hundruð einstaklinga hafa verið handteknir.
Ísland beitir einangrunarvist í gæsluvarðhaldi óhóflega og brýtur þannig m.a. gegn samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu með alvarlegum afleiðingum fyrir sakborninga og rétt þeirra til sanngjarnra réttarhalda. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu Amnesty International, „Waking up to nothing: Harmful and unjustified use of pre-trial solitary confinement in Iceland“.
Lögregla réðst á Moisés Órdenes í október 2019 þegar hann var að mótmæla friðsamlega í Santiago í Síle. Moisés var að berja í pönnu með sleif og taka upp mótmælin þegar hópur lögreglumanna réðst skyndilega á hann. Hann féll til jarðar við árásina og var ítrekað barinn. Árásin var sýnd í beinni útsýningu í sjónvarpsfréttum.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkominni þingsályktunartillögu.
Aly Magdaleno Domínguez Ramos og Jairo Bonilla Ayala, meðlimir baráttuhópsins Guapinol (í héraðinu Colón í norðurhluta Hondúras) sem hefur barist gegn járnnámu, fundust látnir í frumbyggjasamfélaginu Guapinol þann 7. janúar 2023.