Paragvæ: Krefjumst þess að börn fái kynfræðslu í skólum
Á hverjum degi eignast tvær stúlkur yngri en fjórtán ára barn að meðaltali. Paragvæsk stjórnöld geta innleitt menntastefnu sem virkar en þau hafa ekki gert það.
Á hverjum degi eignast tvær stúlkur yngri en fjórtán ára barn að meðaltali. Paragvæsk stjórnöld geta innleitt menntastefnu sem virkar en þau hafa ekki gert það.
Dagana 22. janúar til 3. febrúar fer fram vefuppboð til styrktar Amnesty International á vefsíðu Gallerí Fold, www.myndlist.is. Á uppboðinu verður frábært úrval listaverka sem listafólk hefur gefið í verkefnið. Við hvetjum öll sem hafa í huga að kaupa sér list á árinu og styrkja mikilvæg málefni að fylgjast með!
Javier Tarazona, framkvæmdastjóri félagasamtakanna FundaREDES var handtekinn að geðþótta í júlí 2021 eftir tilraun til að tilkynna áreiti af hálfu öryggisvarða á skrifstofu ríkissaksóknara. Hann var ákærður fyrir etja til haturs, föðurlandssvik og hryðjuverk. Eftir fimm mánaða töf var málið loks tekið fyrir hjá dómstólum. Heilsu Javier hefur hrakað þar sem hann fær ekki viðunandi læknismeðferð. Hann er með háþrýsting, sykursýki og eftirköst vegna Covid-19.
Færslan sem um ræðir innihélt ljósmynd af konu sem var með Kóraninn milli læranna. Faðir Dipti hafði áhyggjur af færslunni og fór því með fjölskyldu sína á lögreglustöðina til að fá lausn í málinu. Þegar þangað var komið sáu þau um 100 klerka samankomna sem vildu höfða mál gegn Dipti.
Mannréttindabarátta Amnesty International hefur skilað miklu árið 2021 um heim allan. Lögum hefur verið breytt til samræmis við mannréttindi og samviskufangar leystir úr haldi. Hér má sjá yfirlit yfir helstu sigra ársins.
Þann 3. ágúst 2021 lést José Eduardo Ravelo af innvortis blæðingum. Hann hafði sagt móður sinni að lögregla hafði pyndað sig í varðhaldi dagana áður í Mérida, í Yucatán héraði í Mexíkó. Skrifstofa saksóknara lýsti því yfir, áður en að rannsókn hófst að hvorki pyndingar né önnur ill meðferð hefði átt sér stað.
Dómstóll í Bretlandi samþykkti beiðni Bandaríkjanna um framsal á Julian Assange sem byggist á ákærum vegna birtingar á leynilegum skjölum á Wikileaks. Birting efnis í almannaþágu er undirstaða fjölmiðlafrelsis þar sem almenningur hefur rétt á upplýsingum um misgjörðir stjórnvalda. Þessi réttur er einnig verndaður í alþjóðamannréttindalögum.
Tíu egypskir menn sem tilheyra samfélagi Núbía hafa verið í haldi án ákæru í 16 mánuði frá því í júlí 2020 vegna friðsæls viðburðar sem þeir höfðu skipulagt. Tveir þeirra eru komnir á aldur og þjást af heilsukvillum.
Íslandsdeild Amnesty International stendur að málþingi um stöðu kvenna í Mexíkó, þriðjudaginn 30. nóvember í Lögbergi, Háskóla Íslands, stofu 101, frá kl. 12 til 13. Claudia Ashanie Wilson, héraðslögmaður og varaformaður Íslandsdeildar Amnesty International, leiðir málþingið. Sérstakir gestir málþingsins eru Wendy Andrea Galarza, feministi og baráttukona, og Edith Olivares Ferreto, framkvæmdastjóri Amnesty International í Mexíkó. Heimsóknin er hluti af árlegri, alþjóðlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi.
Nú eru 73 ár síðan Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Í fjórtándu grein hennar segir: „Rétt skal mönnum vera að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum.“ Réttur flóttamanna er tryggður í alþjóðasamningum og er þeirra mikilvægastur flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951.
Lögreglumenn réðust á Badr Baabou, baráttumann fyrir mannréttindum og hinsegin aðgerðasinna, í Túnis í október 2021. Hann var skotmark öryggissveita vegna vinnu sinnar og baráttu fyrir réttindum hinsegin einstaklinga í Túnis. Þetta er nýlegasta árásin af mörgum sem Badr hefur orðið fyrir undanfarin ár.
Loftslagsváin er aðför að mannréttindum. Brýnt er að ríki á COP26 ráðstefnunni grípi strax til aðgerða til verndar mannréttindum.