Listaverkauppboðið
Dagana 22. janúar – 3. febrúar fór fram listaverkauppboð á vef Gallerí Fold þar sem allur ágóði rann til Amnesty International.
Dagana 22. janúar – 3. febrúar fór fram listaverkauppboð á vef Gallerí Fold þar sem allur ágóði rann til Amnesty International.
Milljónir Palestínubúa búa við kerfisbundna aðskilnaðarstefnu Ísraela og með þessu grimmilega og fordómafulla kerfi er komið í veg fyrir að Palestínubúar eignist heimili.
Það verður að draga ísraelsk yfirvöld til ábyrgðar fyrir aðskilnaðarstefnu þeirra gegn palestínsku fólki, segir í nýrri skýrslu Amnesty International. Aðskilnaðarstefnan er glæpur. Skýrslan greinir frá kerfisbundinni kúgun og yfirráðum Ísraels yfir palestínsku fólki hvar sem mögulegt er að hafa stjórn á réttindum þess. Þetta á við um palestínskt fólk sem býr í Ísrael, á hernumdu svæðum Palestínu og palestínskt flóttafólk í öðrum löndum.
Fleiri en hundrað einstaklingar eru í haldi að geðþótta fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið og koma saman friðsamlega. Í Kamerún er herjað á fylgjendur stjórnarandstöðunnar, baráttufólk fyrir mannréttindum, mótmælendur og annað baráttufólk.
Baráttukonan Atena Daemi er laus úr haldi! Mál hennar var partur af herferðinni Þitt nafn bjargar lífi 2018.
Á hverjum degi eignast tvær stúlkur yngri en fjórtán ára barn að meðaltali. Paragvæsk stjórnöld geta innleitt menntastefnu sem virkar en þau hafa ekki gert það.
Dagana 22. janúar til 3. febrúar fer fram vefuppboð til styrktar Amnesty International á vefsíðu Gallerí Fold, www.myndlist.is. Á uppboðinu verður frábært úrval listaverka sem listafólk hefur gefið í verkefnið. Við hvetjum öll sem hafa í huga að kaupa sér list á árinu og styrkja mikilvæg málefni að fylgjast með!
Javier Tarazona, framkvæmdastjóri félagasamtakanna FundaREDES var handtekinn að geðþótta í júlí 2021 eftir tilraun til að tilkynna áreiti af hálfu öryggisvarða á skrifstofu ríkissaksóknara. Hann var ákærður fyrir etja til haturs, föðurlandssvik og hryðjuverk. Eftir fimm mánaða töf var málið loks tekið fyrir hjá dómstólum. Heilsu Javier hefur hrakað þar sem hann fær ekki viðunandi læknismeðferð. Hann er með háþrýsting, sykursýki og eftirköst vegna Covid-19.
Færslan sem um ræðir innihélt ljósmynd af konu sem var með Kóraninn milli læranna. Faðir Dipti hafði áhyggjur af færslunni og fór því með fjölskyldu sína á lögreglustöðina til að fá lausn í málinu. Þegar þangað var komið sáu þau um 100 klerka samankomna sem vildu höfða mál gegn Dipti.
Mannréttindabarátta Amnesty International hefur skilað miklu árið 2021 um heim allan. Lögum hefur verið breytt til samræmis við mannréttindi og samviskufangar leystir úr haldi. Hér má sjá yfirlit yfir helstu sigra ársins.
Þann 3. ágúst 2021 lést José Eduardo Ravelo af innvortis blæðingum. Hann hafði sagt móður sinni að lögregla hafði pyndað sig í varðhaldi dagana áður í Mérida, í Yucatán héraði í Mexíkó. Skrifstofa saksóknara lýsti því yfir, áður en að rannsókn hófst að hvorki pyndingar né önnur ill meðferð hefði átt sér stað.
Dómstóll í Bretlandi samþykkti beiðni Bandaríkjanna um framsal á Julian Assange sem byggist á ákærum vegna birtingar á leynilegum skjölum á Wikileaks. Birting efnis í almannaþágu er undirstaða fjölmiðlafrelsis þar sem almenningur hefur rétt á upplýsingum um misgjörðir stjórnvalda. Þessi réttur er einnig verndaður í alþjóðamannréttindalögum.