Venesúela: Kona í haldi í lífshættu
Emirlendris Benítez, 42 ára móðir, systir og sölukona, var handtekin að geðþótta í Venesúela í ágúst 2018. Hún er í haldi vegna stjórnmálaskoðana sinna og hefur sætt pyndingum.
Emirlendris Benítez, 42 ára móðir, systir og sölukona, var handtekin að geðþótta í Venesúela í ágúst 2018. Hún er í haldi vegna stjórnmálaskoðana sinna og hefur sætt pyndingum.
Lögregla réðst á Moisés Órdenes í október 2019 þegar hann var að mótmæla friðsamlega í Santiago í Síle. Moisés var að berja í pönnu með sleif og taka upp mótmælin þegar hópur lögreglumanna réðst skyndilega á hann. Hann féll til jarðar við árásina og var ítrekað barinn. Árásin var sýnd í beinni útsýningu í sjónvarpsfréttum.
Aly Magdaleno Domínguez Ramos og Jairo Bonilla Ayala, meðlimir baráttuhópsins Guapinol (í héraðinu Colón í norðurhluta Hondúras) sem hefur barist gegn járnnámu, fundust látnir í frumbyggjasamfélaginu Guapinol þann 7. janúar 2023.
Benjamin Cole, 57 ára maður á að verða tekinn af lífi 20. október næstkomandi. Hann var dæmdur til dauða 2004 fyrir morð á níu mánaða gamalli dóttur sinni í desember 2002. Hann hefur verið greindur með geðklofa og heilaskaða.
Varðhald um óákveðinn tíma sem bandarísk stjórnvöld hafa beitt í Guantanamo-fangelsinu í kjölfar september 2001 er ólögmætt. Enn eru 19 fangar í haldi þrátt fyrir að búið sé að heimila lausn þeirra. Krefstu þess að ríkisstjórn Joe Biden, Bandaríkjaforseta, loki Guantanamo fangelsinu fyrir fullt og allt.
Rannsaka þarf morðið á Kevin Agudelo sem átti sér stað í aðgerðum lögreglu. Þúsundir fólks fór út á götur í þjóðarverkfalli í mörgum borgum Kólumbíu árið 2021 til að krefjast réttar síns. Viðbrögð stjórnvalda var að ráðast á og refsa þeim einstaklingum sem létu í sér heyra. Flest mannréttindabrot í tengslum við mótmælin áttu sér stað í borginni Cali.
Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi Roe v. Wade, dóminn um þungunarrof þann 24. júní 2022. Tarah Demant hjá Bandaríkjadeild Amnesty International hefur þetta um málið að segja:
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur snúið við fordæmi dóms sem verndaði réttinn til þungunarrofs í landinu. Krefjumst þess að ríkisstjórar í öllum ríkjum Bandaríkjanna komi í veg fyrir þungunarrofsbann og verndi réttinn til þungunarrofs.
Það gleður okkur að geta deilt þakkarmyndbandi frá Berndardo Caal Xol, fyrrum samviskufanga í Gvatemala. Nýverið var hann leystur úr haldi eftir rúm fjögur ár í fangelsi í kjölfar árlegrar herferðar okkar, Þitt nafn bjargar lífi, fyrir árið 2021. Nú þakkar hann hverjum og einum þátttakanda fyrir framlag sitt. Um hálf milljón einstaklinga um heim allan kallaði eftir lausn hans í herferðinni Þitt nafn bjargar lífi 2021. Á Íslandi sýndu 6.597 einstaklingar stuðning sinn í verki fyrir máli hans með undirskrift sinni. Að auki skrifaði fólk til hans kveðjur og bréf honum til stuðnings.
Enn og aftur hefur þitt nafn bjargað lífi. Mál samviskufangans Bernardo Caal Xol var hluti af árlegu herferð okkar, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2021. Bernando varð frjáls á ný þann 24. mars eftir fjögur ár í fangelsi. Lögfræðingur hans sagði að dómari hefði fyrirskipað lausn hans vegna góðrar hegðunar.
Á hverjum degi eignast tvær stúlkur yngri en fjórtán ára barn að meðaltali. Paragvæsk stjórnöld geta innleitt menntastefnu sem virkar en þau hafa ekki gert það.
Javier Tarazona, framkvæmdastjóri félagasamtakanna FundaREDES var handtekinn að geðþótta í júlí 2021 eftir tilraun til að tilkynna áreiti af hálfu öryggisvarða á skrifstofu ríkissaksóknara. Hann var ákærður fyrir etja til haturs, föðurlandssvik og hryðjuverk. Eftir fimm mánaða töf var málið loks tekið fyrir hjá dómstólum. Heilsu Javier hefur hrakað þar sem hann fær ekki viðunandi læknismeðferð. Hann er með háþrýsting, sykursýki og eftirköst vegna Covid-19.