Verjumst aðför að réttindum kvenna
Þetta er ekki tilviljun. Þetta er meðvituð stefna stjórnmálaafla.
Þetta er ekki tilviljun. Þetta er meðvituð stefna stjórnmálaafla.
Hervæðing leiðir til dauða
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn þriðjudaginn 24. mars 2026 kl. 18 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Í ljósi bakslags í réttindum kvenna á heimsvísu og í skugga Epsteins-skjalanna kallar sendinefnd Amnesty International, undir forystu aðalframkvæmdastjórans Agnèsar Callamards, eftir öflugri aðgerðum til að vernda og efla réttindi kvenna og stúlkna á 70. fundi nefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu kvenna (CSW70) í New York dagana 9.–19. mars.
Stjórnvöld víða um heim eru að grafa undan áratugalöngum framgangi í jafnréttismálum. Afleiðingarnar eru meðal annars auknar árásir á kyn- og frjósemisréttindi, þöggun feminískra radda, og niðurskurður á fjármögnun kvenréttindasamtaka.
Victoire Ingabire var handtekin í júní 2025 og sökuð um þátttöku í samsæri með hinum níu sem hafa verið í haldi frá október og desember 2021. Þau eru meðal annars ákærð fyrir að „stofna eða ganga til liðs við glæpasamtök, leggja á ráðin gegn stjórnvöldum og hvetja til óeirða eða uppþots meðal almennings“.
Stigvaxandi átök eiga sér stað í Mið-Austurlöndum í kjölfar árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran, sem svaraði fyrir sig með hefndarárásum víðs vegar um svæðið. Amnesty International kallar eftir því að allir aðilar verndi óbreytta borgara, virði alþjóðleg mannúðarlög og stöðvi ólögmætar árásir eins og árásir af ásettu ráði, handahófskenndar árásir og óhóflegar árásir á óbreytta borgara og borgaralegar eignir.
Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International lýsir yfir miklum vonbrigðum með og gerir alvarlegar athugasemdir við þau áform dómsmálaráðherra að setja á fót brottfararstöð (hér eftir varðhaldsstöð) þar sem útlendingur sætir frelsisskerðingu samkvæmt lögum um útlendinga vegna ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi og Íslandsdeild Amnesty International eru hluti af alþjóðahreyfingum sem beita sér fyrir vernd mannréttinda á heimsvísu.
Á afskekktum stað
Íbúar Súdan upplifa sig gleymda í vaxandi ofbeldi í landinu þar sem stríðandi fylkingar eiga sök á gríðarlegu mannfalli og eyðileggingu. Íbúarnir eru fastir í miðjum átökunum og hafa hvorki aðgang að mat, vatni né heilbrigðisþjónustu. Skertur aðgangur að netinu þýðir að óbreyttir borgarar hafa engan aðgang að upplýsingum um öruggar flóttaleiðir eða hvar hægt er að finna lyf. Stríðandi fylkingar hafa háð stríð frá árinu 2023 og að mestu virt að vettugi mannréttindi og alþjóðleg mannúðarlög.