Réttlát orkuskipti

Loft­lags­breyt­ingar valda fordæma­lausri mann­rétt­inda­neyð. Nú þegar veldur bruni jarð­efna­eldsneytis dauðs­föllum og umhverf­is­spjöllum. Þetta verður að stöðva!

Lofts­lags­breyt­ingar ógna fjöl­mörgum mann­rétt­indum á borð við rétt til vatns, heilsu og lífs. Lofts­lags­váin eykur kerf­is­lægan ójöfnuð og mismunun. Alþjóða­hag­kerfið þarf því að hverfa frá notkun jarð­eldsneytis og snúa sér að endur­nýj­an­legri orku.

En hætta er á að orku­skiptin brjóti á mann­rétt­indum fólks og valdi umhverf­is­spjöllum þar sem þau krefjast stór­aukn­ingar á námugreftri á málmi og steinefnum. Breyti námu­fyr­ir­tæki og stærstu kaup­endur þeirra ekki um stefnu er hætta á að það bitni á mann­rétt­indum samfé­laga eins og frum­byggja­sam­fé­lögum í grennd við námu­vinnslu. Verði það ekki gert er réttlát og sjálfbær framtíð ekki tryggð.

Nú er kominn tími til að grípa til aðgerða sem tryggja umhverf­i­svæn og mann­rétt­inda­miðuð orku­skipti.

Hvað felst í orkuskiptum

Stjórn­völd og ýmis iðnaður á alþjóða­vísu er nú þegar að færa sig í átt að endur­nýj­an­legri orku.

Til að draga úr notkun jarð­efna­eldsneytis hefur orðið veruleg aukning á notkun á endur­hlað­an­legum rafhlöðum fyrir rafmagns­bíla og orku­geymslu.

Kóbalt, kopar, nikkel og liþíum eru helstu efnin í endur­hlað­an­legum rafhlöðum fyrir rafmagns­bíla og stræt­is­vagna. Þessar rafhlöður eru einnig mikið notaðar í tæki eins og farsíma, fartölvur, mynda­vélar og rafmagns­verk­færi.

Árið 2030 má búast við að tvöfalt meiri eftir­spurn verði eftir nikkel, áttfalt meiri eftir mangan og tífalt meiri eftir kóbalt og liþíum miðað við fram­leiðslu í byrjun þessa áratugs.

Rann­sóknir Amnesty Internati­onal sýna að námugröftur þessara hráefna ógnar mann­rétt­indum.

Ríki, fyrir­tæki, fjár­festar og neyt­endur hafa nú tæki­færi til að skuld­binda sig til að styðja orku­skipti sem vernda og virða mann­rétt­indi í einu og öllu.

Orkuskipti og mannréttindi

Orkuskipti eru bráðnauðsynleg

Aukin notkun endur­hlað­an­legra rafhlaðna hefur haft neikvæð áhrif á svæðum sem eru rík af steinefnum eins og í svoköll­uðum „liþíum­þrí­hyrn­ingi“ Suður-Ameríku og á kóbalt­námu­svæði Lýðstjórn­ar­lýð­veld­isins Kongó þar sem iðnað­urinn í tengslum við það hefur lengi verið óheftur.

Þessi óhefti iðnaður hefur haft alvarleg áhrif á samfélög víða í Suður-Ameríku og aust­ur­hluta og suður­hluta Afríku.

  • Í Lýðstjórnarlýð­veldinu Kongó eru heilu samfé­lögin þvinguð af heim­ilum sínum og rækt­ar­land tekið af þeim fyrir stækk­andi námu­iðnað sem sækist eftir kóbalti og kopar. Börn allt niður í sjö ára eru látin grafa eftir málmi í námunum fyrir lág laun og við hættu­legar aðstæður.
  • Í Salar de Atacama, svæði sem nær yfir Síle, Argentínu og Bólivíu, er námugröftur eftir liþíum og kopar ógn við rétt­indi frum­byggja sem þar búa og rétt þeirra til sjálfs­ákvörð­unar. Vatns­bólum og vist­kerfi á svæð­unum er einnig ógnað sem hefur áhrif á lífs­við­ur­væri og menn­ingu þessara samfé­laga.

Um allan heim hefur illa útfærð meðferð úrgangs frá námu­iðn­að­inum leitt til langvar­andi meng­unar sem skaðar heilsu fólks án þess að nokkur aðili sé látinn bera ábyrgð á hreinsun eða úrbótum.

Á sama tíma er lagt kapp á að finna nýjar auðlindir af steinefnum fyrir rafhlöður með námugreftri á hafs­botni. Það stofnar vist­kerfi sjáv­ar­botns í alvar­lega hættu með óaft­ur­kræfum hætti og ógnar lífs­við­ur­væri samfé­laga sem lifa við sjóinn.

Orku­skipti eru bráðnauð­synleg eftir því sem lofts­lags­váin eykst. Lausnir mega þó ekki að vera á kostnað mann­rétt­inda.

Fyrir­tækjum í námugreftri steinefna ber skylda til að tryggja mann­rétt­indi hvar sem viðskipti eru stunduð og vinna að úrbótum þegar brotið er á rétt­indum fólks í tengslum við starf­semi þeirra eða af hálfu viðskipta­tengsla. Binda þarf tafar­laust enda á barna­þrælkun, þvingaða brott­flutn­inga, mengun og hættu­legar vinnu­að­stæður.

Hlutaðeigendur

Stjórn­völd og fyrir­tæki sem tengjast þessum alþjóð­lega iðnaði stytta sér oft leið með því að líta fram hjá mann­rétt­inda­stöðlum, örygg­is­reglum og umhverf­is­vernd til að græða sem mest. Alþjóðleg risa­fyr­ir­tæki líta ítrekað fram hjá umhverfis- og fjár­málaglæpum eða eru jafnvel viðriðin slíka glæpi.

Stjórn­völd bregðast oft skyldum sínum til að bæta fyrir og rann­saka opin­ber­lega spill­ingu, umhverf­is­mengun, brot á rétt­indum vinnu­afls og enn síður að lögsækja fyrir slík brot. Það er nánast óheyrt að fyrir­tæki bæti fyrir skaða sem samfélög verða fyrir vegna námugröfts.

Næstu árin má búast við að verk­smiðjur auki veru­lega fram­leiðslu á rafhlöðum. Fjár­fest­ingar í jarð­efna­eldsneytis munu í auknum mæli dragast saman og meira verður um frjár­fest­ingar í endur­nýj­an­legri orku. Þessi fjár­festing er þó oft gerð án áreið­an­leika­könn­unar um að fjár­fest­ingin ýti ekki undir brot á rétt­indum.

Fyrir­tæki og fjár­festar einblína eingöngu á útþenslu frekar en auðlind­ar­nýtni, endur­nýt­ingu og endur­vinnslu. Þrýst er á meiri námugröft á steinefnum en á sama tíma eykst sóunin.

Amnesty Internati­onal hefur rann­sakað ítar­lega hættur sem stafa af námugrefti vegna orku­skipta sem geta bitnað á mann­rétt­indum og umhverfinu.

Hver er lausnin?

Hægt er að komast hjá því að mann­rétt­inda­brot séu hluti af orku­skiptum. Það er ólíð­andi að orku­skipti tengist misbeit­ingu vinnu­afls, eign­ar­svipt­ingum og umhverf­is­spjöllum.

Stjórn­völd sem tengjast verð­mæta­keðju endur­hlað­an­legra rafhlaðna hafa nú tæki­færi til að móta stefnu í orku­skiptum sem tryggir mann­rétt­indi.

Fyrir­tæki sem hafa markað sig sem leið­andi í sjálf­bærni á alþjóða­vísu verða að setja mann­rétt­indi og umhverf­ismál í forgang til að forðast að dýpka þann ójöfnuð og órétt­læti sem nú þegar er til staðar.

Fyrir­tæki, fjár­festar og stjórn­völd geta komið í veg fyrir mann­rétt­inda­brot og nátt­úru­spjöll með mann­rétt­inda­mið­aðri nálgun í tengslum við verð­mæta­keðju rafhlaðna.

Kóbaltnáma í Lýðstjórnalýðveldinu Kongó, 2022.

Kröfur til fyrirtækja

Fyrirtæki þurfa að gera allt sem í sínu valdi stendur til að „valda ekki skaða“.

Alþjóð­legir staðlar á borð við leið­bein­andi megin­reglur Sameinuðu þjóð­anna um viðskipti og mann­rétt­indi (e. UN Guiding Principles on Business and Human Rights) er leið­ar­vísir um hvað þarf að gera til að virða mann­rétt­indi í starf­sem­inni og hvernig úrræði þarf að veita fyrir þann skaða sem starf­semin veldur eða á þátt í.

Tilmæli Amnesty Internati­onal til fyrir­tækja eru meðal annars að:

  • Fyrir­tæki tryggi að starf­semi þeirra, dótt­ur­fyr­ir­tækja og birgða­sala fylgi alþjóð­legum stöðlum um umhverf­is­vernd og mann­rétt­indi. Það felur meðal annars í sér að tryggja mann­rétt­indi með því að sjá til þess að fylgst sé vel með og gripið verði til aðgerða vegna mann­rétt­inda­brota og umhverf­isáhrifa.

 

 

  • Fyrir­tæki tryggi að starf­semi þeirra þaggi ekki niður í röddum samfé­laga sem verða fyrir áhrifum vegna námugröfts, þá sérsak­lega frum­byggja og baráttu­fólks til verndar umhverf­isins og mann­rétt­inda. Nauð­syn­legt er að hlusta á raddir þessa fólks til að tryggja rétta nálgun.
  • Atvinnu­veit­endur virði rétt­indi verka­fólks í samræmi við alþjóð­lega staðla.
  • Fyrir­tæki geri mann­rétt­inda­miðað áhættumat á öryggis­að­gerðum. Mútur og spilling mega aldrei eiga sér stað og það þarf að sjá til þess að slíkt líðist ekki.
  • Fram­leið­endur rafhlaðna verða að auka hlut­fall endur­vinn­an­legs efnis í rafhlöðum og hanna rafhlöður sem auðvelt er að taka í sundur fyrir endur­vinnslu efnis.
  • Allir bíla­fram­leið­endur skipti út bruna­hreyflum eins fljótt og hægt er.
  • Fram­leið­endur rafhlaðna hafni steinefnum sem koma frá sjáv­ar­botni.

Kröfur til stjórnvalda

Tilmæli Amnesty Internati­onal til stjórn­valda eru meðal annars að:

  • Rann­saka og taka á málum sem tengjast brotum á mann­rétt­indum og umhverf­is­vernd.
  • Vernda baráttu­fólk fyrir umhverf­is­vernd og frum­byggja svo hægt sé að tryggja þátt­töku þessara hópa í rétt­látum orku­skiptum.
  • Tryggja úrræði fyrir samfélög sem finna fyrir afleið­ingum námugröfts.
  • Refsa fyrir mútur og spill­ingu námu­fyr­ir­tækja, bræðslu­vera, fram­leið­enda og annarra fyrir­tækja sem græða á orku­skiptum.
  • Setja lokafrest á sölu nýrra bruna­hreyf­ils­bíla og innleiða stefnu um að draga úr bílferðum, þar á meðal að fækka bílum á vegum.
  • Setja lágmarks­staðla fyrir orku­skil­virkni í vörum og farar­tækjum til að spara rafmagn og auðlindir.
  • Setja lágmark á líftíma rafhlaðna fyrir rafmagns­bíla og önnur raftæki.
  • Krefjast viðgerða á rafhlöðum eða að þeim sé safnað saman fyrir endur­vinnslu og fjár­festa í rann­sóknum sem er ætlað að betr­um­bæta hönnun og endur­vinnslu rafhlaðna.

 

Ríki heims þurfa einnig að tryggja hröð orku­skipti í átt að eingöngu endur­nýj­an­legri orku, krefjast saman­tektar um kolefn­is­spor rafhlaðna og standa gegn öllum gerðum af námugreftri á hafs­botni.

Ríkis­stjórnir heims verða að setja lög sem krefja fyrir­tæki að virða mann­rétt­indi og vernda umhverfið, meðal annars með því að sjá til þess að fyrir­tæki hafi eftirlit með birgða­keðju sinni.

Ríks­stjórnir verða að tryggja að að lögum og reglu­gerðum um umhverf­is­vernd og mann­rétt­indi sé fram­fylgt. Hætta þarf að beita hagrænum hvötum fyrir jarð­efna­eldsneyti á borð við niður­greiðslur, skattaí­vilnun, lán eða afskriftir.

Athugið!

Bráðnauð­syn­legt er fyrir mann­kynið að hætta að brenna jarð­efna­eldsneyti og færa sig yfir í endur­nýja­lega orku. Endur­hlað­an­legar rafhlöður eru ómiss­andi og spenn­andi þáttur í orku­skipt­unum.

Réttlát orku­skipti í átt að endur­nýj­an­legri orku mun ávallt þurfa námu­vinnslu, land og auðlindir. En nú er tími til kominn að stjórn­völd setji reglur fyrir fyrir­tæki og verndi mann­rétt­indi.

Þó að mann­kynið verði að hætta að brenna jarð­efna­eldsneyti og færa sig yfir í endur­nýj­an­lega orku með tilheyr­andi námu­vinnslu þá má það alls ekki bitna á mann­rétt­indum!

Hvað er Amnesty International að gera?

Amnesty Internati­onal gaf út megin­reglur fyrir fyrir­tæki og stjórn­völd til að koma í veg fyrir brot á mann­rétt­indum og umhverf­is­spjöll í tengslum við fram­leiðslu á endur­hlað­an­legum rafhlöðum.

Megin­regl­urnar eru leið­bein­andi reglur um þau skref sem stjórn­völd og fyrir­tæki verða að taka til að koma í veg fyrir slík brot. Um 70 alþjóðleg samtök og einstak­lingar hafa lýst yfir stuðn­ingi sínum yfir þeim.

Amnesty Internati­onal hefur gert rann­sóknir og áköll sem tengjast orku­skiptum. Má þar nefna skýrslu um þvingaða brott­flutn­inga í Lýðstjórn­ar­lýð­veldinu Kongó vegna námugraftar. Í tengslum við rann­sóknina er ákall til stjórn­valda þar í landi um að stöðva þvingaða brott­flutn­inga og mann­rétt­inda­brot í grennd við kopar- og kóbalt­námur.

 

Drónamynd af hverfinu Gécamines Kolwezi, sem er við hliðina á kopar-og kóbalt námu í eigu kínverska fyrirtækisins COMMUS. Mynd tekin september 2022.

Tengt efni