Yfirlýsing stjórnar Íslandsdeildar Amnesty International vegna frumvarps til laga um brottfararstöð
Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International lýsir yfir miklum vonbrigðum með og gerir alvarlegar athugasemdir við þau áform dómsmálaráðherra að setja á fót brottfararstöð (hér eftir varðhaldsstöð) þar sem útlendingur sætir frelsisskerðingu samkvæmt lögum um útlendinga vegna ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum.

