Venesúela: Stöðva þarf ofsóknir gegn félagasamtökum
Frá því í nóvember í ár hafa yfirvöld í Venesúela hert árásir sínar gegn PROVEA, frjálsum félagasamtökum sem verja mannréttindi þar í landi.
Frá því í nóvember í ár hafa yfirvöld í Venesúela hert árásir sínar gegn PROVEA, frjálsum félagasamtökum sem verja mannréttindi þar í landi.
Herferðin Þitt nafn bjargar lífi gengur vel í ár líkt og áður. Undirskriftum er safnað víðs vegar um heim til stuðnings níu einstaklingum og hópum sem þolað hafa mannréttindabrot. Fjölmargar fræðslur um herferðina hafa verið í skólum, bæði framhalds- og grunnskólum. Á döfinni eru fjölbreyttir viðburðir og undirskriftasafnanir í tengslum við herferðina.
Í nýlegri úttekt vakti Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna (e. Human Rights Committee) athygli á áhyggjum sínum er varða mannréttindi á Íslandi, þar sem nefndin tók meðal annars undir áhyggjuefni sem sett voru fram í skriflegri skýrslu Amnesty International. Nefndin tók undir þrjú af fjórum lykilatriðum sem Amnesty International vakti sérstaklega athygli á og lagði til breytingar er varða útlendingalög, beitingu einangrunarvistar og lagaákvæði um eftirlit með aðgerðum lögreglu.
Ár hvert tekur fjöldi fólks um heim allan þátt í alþjóðlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi. Þetta er auðveld leið til þess að hafa mikil áhrif á einfaldan og aðgengilegan hátt. Það eina sem þarf að gera er að skrifa undir málin á vefsíðu Íslandsdeildar Amnesty International. Það er svona auðvelt að breyta heiminum til hins betra!
Eftir að ljóst varð, á síðasta ári, að Aserbaísjan yrði gestgjafi fyrir COP29 hafa þöggunaraðgerðir stjórnvalda gegn gagnrýnisröddum aukist, með auknum handtökum og varðhaldi af geðþóttaástæðum ásamt málsóknum gegn fjölda aðgerðasinna og fjölmiðlafólks.
Amnesty International kallar eftir því í nýrri skýrslu að bílaframleiðendur greini og dragi úr hættum á neikvæðum áhrifum á mannréttindi í aðfangakeðju sinni vegna aukinnar eftirspurnar á heimsvísu eftir málmum í rafhlöður. Hætta er á þvinguðum brottflutningum, heilsutjóni vegna mengunar og að brotið sé á réttindum frumbyggja í þeim löndum sem grafa eftir þessum málmum eins og Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og á Filippseyjum. Skýrslan sýnir að helstu framleiðendur rafmagnsbíla hafi ekki getað sýnt fram á að unnið sé að því að draga úr hættu á brotum á mannréttindum í aðfangakeðju þeirra.
Baráttukonan Sandra Domínguez og eiginmaður hennar Alexander Hernández hurfu sporlaust. Ættingjar Söndru tilkynntu ríkissaksóknara í Oaxaca-héraði að hjónin höfðu síðast sést á heimili sínu í María Lombardo de Caso, í suðurhluta Oaxaca-héraðs í Mexíkó, 4. október 2024.
Þitt nafn bjargar lífi er alþjóðleg herferð Amnesty International. Taktu þátt og skrifaðu undir 9 áríðandi mál einstaklinga sem beittir eru alvarlegum órétti. Þú getur lesið um öll málin hér fyrir neðan.
Taktu þátt í árlegri og alþjóðlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjarrgar lífi. Skrifaðu undir níu áríðandi mál einstaklinga eða hópa sem beittir eru alvarlegum órétti.
Norrænt ungliðaráð Amnesty International hefur gefið út ákall til forsætisráðherra fjögurra Norðurlanda um að viðurkenna aðskilnaðarstefnu Ísraels gegn Palestínubúum.
Harðnandi átök í Mið-Austurlöndum hafa haft gífurleg áhrif á líf óbreyttra borgara. Rúmt ár er liðið frá árásinni 7. október og frá því að loftárásir Ísraela á Gaza hófust. Ísraelsk stjórnvöld hafa nú einnig beint sjónum sínum í auknum mæli að Líbanon með árásum þar.
Pakhshan Azizi er baráttukona og Kúrdi, sem er minnihlutahópur í Íran. Hún var dæmd til dauða í júlí 2024 eftir óréttlát réttarhöld fyrir það eitt að sinna friðsamlegum mannúðar- og mannréttindastörfum, þar á meðal að hjálpa konum og börnum á flótta í norðausturhluta Sýrlands.