Síur í notkun

197 niðurstöður

Raða eftir
  • Egyptaland: Þrír blaðamenn handteknir af geðþótta

    Þann 29. nóvember 2019 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn blaðamennina Solafa Magdy, Hossam el-Sayed og Mohamed Salah á kaffihúsi í Kaíró höfuðborg Egyptalands. Farsímar þeirra, tölvur og bílar voru gerð upptæk. Degi síðar voru blaðamennirnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á ákærum á hendur þem. Solafa og Mohamed eru ákærð fyrir „að ganga í hryðjuverkahóp“ og „dreifingu á fölskum fréttum“ á meðan Hossam er ákærður fyrir „félagaaðild að hryðjuverkasamtökum“. Leynilögreglumenn hafa beitt Solafa barsmíðum fyrir að neita að veita aðgang að farsíma sínum. Saksóknarinn framlengdi síðan varðhald þeirra um 15 daga á meðan rannsókn stæði yfir.

  • Sigrar ársins 2019

    Árangur af starfi Amnesty International og mannréttindabaráttunnar er margs konar. Lög eru sett til verndar mannréttindum, komið er í veg fyrir lagabreytingar sem ógna mannréttindum, réttlæti næst, aftökur eru stöðvaðar, fólk er leyst úr haldi og fyrirtækjum gert að virða mannréttindi. Þátttaka þín í mannréttindabaráttunni skiptir máli.

  • Egyptaland: Mannréttindalögfræðingur í haldi

    Þann 22. september 2019 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn mannréttindalögfræðinginn og aðgerðasinnann Mahienour el-Masry þegar hún var að ganga út úr byggingu saksóknara í borginni Alexandríu. Saksóknari yfirheyrði síðan Mahienour el-Masry út af ákærum á hendur henni sem enginn fótur er fyrir, þar á meðal fyrir „að aðstoða hryðjuverkahóp“, og „dreifingu á fölskum fréttum“ í máli sem tengist mótmælum gegn ríkisstjórn Egyptalands sem fram fóru í mars 2019. Saksóknarinn fyrirskipaði 15 daga varðhald yfir henni í Al Qanater kvennafangelsi á meðan að rannsókn stæði yfir.

  • Eþíópía: Leysa verður háskólakennara úr haldi

    Þann 17. ágúst var háskólakennarinn Firew Bekele handtekinn og ákærður samkvæmt harkalegum hryðjuverkalögum (e. Anti-Terrorism Proclamation) Eþíópíu. Á seinasta áratug hafa lögin verið notuð til að bæla niður andstöðu. Firew Bekele er ákærður fyrir að skrifa bók sem gagnrýnir forsætisráðherra Eþíópíu, Abiy Ahmeden, enhann neitar að hafa skrifað bókina. Firew Bekele er samviskufangi sem þarf að leysa tafarlaust úr haldi án skilyrða.

  • Mannréttindasinni í haldi í heilt ár án dóms

    Đoàn Thị Hồng var handtekin ólöglega í september 2018 og hefur verið í haldi síðan án þess að mál hennar hafi verið tekið fyrir af dómstólum. Fjölskylda Đoàn Thị Hồng fékk ekki að hitta hana fyrr en 4. september 2019, 11 mánuðum eftir að hún var tekin höndum, og tók þá eftir heilsubrestum hjá henni. Við krefjumst þess að yfirvöld leysi Đoàn Thị Hồng úr haldi þar sem hún er samviskufangi og hefur einungis nýtt rétt sinn til tjáningarfrelsis á friðsamlegan hátt.

  • Tyrkland: Tveir menn horfnir sporlaust

    Tveir menn, Gökhan Türkmen og Mustafa Yılmaz, hurfu sporlaust í febrúar á þessu ári. Grunur leikur á að um þvingað mannhvarf sé að ræða en yfirvöld hafa til þessa neitað að þeir séu í haldi þeirra. Þann 29. júlí birtust á ný fjórir menn, sem einnig hafði verið saknað síðan í febrúar, en þeir höfðu verið í haldi hryðjuverkadeildar lögreglunnar í höfuðstöðvum hennar í Ankara. Báðir mennirnir sem enn er saknað eru opinberir starfsmenn sem reknir voru samkvæmt tilskipun ríkisstjórnarinnar í kjölfar valdaránstilraunarinnar í Tyrklandi árið 2016.

  • Senegal: Aðgerðasinni ákærður fyrir Facebookfærslur

    Aðgerðasinni frá Senegal, Guy Marius Sagna, var ákærður fyrir „falskar hryðjuverkaaðvaranir“ þann 5. ágúst síðastliðinn. Hann var handtekinn að geðþótta þann 16. júlí í höfuðborginni Dakar en leystur úr haldi mánuði síðar. Guy var yfirheyrður vegna tveggja Facebook-færslna þar sem hann fjallaði um skort á fullnægjandi læknisaðstöðu í Senegal og einnig fyrir innlegg sitt á Facebook-síðu sinni um veru franska hersins í Afríku.

  • Súdan: Stöðvum árásir á mótmælendur

    Súdanska hersveitin sem nefnist „Rapid Support Forces“ hefur ráðist á og myrt friðsama mótmælendur. Súdanskir borgarar hafa stofnað lífi sínu og öryggi í hættu við að krefjast umbóta í landinu. Mótmælendur hafa barist fyrir breytingum og kallað eftir frelsi, friði og réttlæti og í apríl síðastliðinn var forseta landsins, Omar al-Bashir, komið frá völdum.

  • Frakkland: Stöðvum ofsóknir gegn rannsóknarblaðamönnum

    Þann 14. og 15. maí var tveimur blaðamönnum hjá Radio France, Geoffrey Livolsi og Mathias Destal, skipað að mæta í fyrirtöku í dómsmáli frönsku leyniþjónustunnar eftir að saksóknari Parísarborgar hóf undirbúningsrannsókn gegn þeim fyrir að birta leynilegar upplýsingar um varnarmál Frakklands. Í apríl birtu þeir leynileg skjöl, svokölluðu „Jemen pappírana“, um sölu franskra vopna til Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem notuð hafa verið gegn almennum borgurum í borgarastríðinu í Jemen. Aðgerðir blaðamanna eiga þó rétt á sér samkvæmt ákvæðum laga um tjáningarfrelsi og því verður að stöðva rannsóknir gegn þeim samstundis.