Skráning hafin fyrir mannréttindasmiðju Íslandsdeildar Amnesty International
Mannréttindasmiðjan er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 14-18 ára, sem brennur fyrir mannréttindum.
Mannréttindasmiðjan er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 14-18 ára, sem brennur fyrir mannréttindum.
Íslandsdeild Amnesty International heldur sérstaka sýningu á verðlaunaheimildarmyndinni Soviet Barbara í tilefni af herferð Amnesty International gegn rússneskum ritskoðunarlögum um hernað.
Chen Pinlin er leikstjóri heimildamyndarinnar Urumqi Middle Road (乌鲁木齐中路), sem fjallar um friðsamlegu mótmælahreyfinguna White Paper Movement.
Amnesty International varar við aðsteðjandi ógn og vendipunkti í alþjóðalögum mitt í svívirðilegum lagabrotum ríkisstjórna og fyrirtækja.
Á hverju ári blæs Íslandsdeild Amnesty International til herferðarinnar, Þitt nafn bjargar lífi, sem er alþjóðleg mannréttindaherferð við að safna undirskriftum til stuðnings einstaklinga eða hópa sem þolað hafa mannréttindabrot.
Nú þegar ár er liðið frá upphafi stríðsátaka á milli hersveitar Súdans og RSF-hersveita (e. Rapid Support Forces) hafa viðbrögð alþjóðasamfélagsins verið sorglega bágborin á sama tíma og mannfall óbreyttra borgara í landinu eykst. Í dag þann 15. apríl, þegar ár er liðið frá upphafi átakanna, verður listasýning haldin í Naíróbí í Kenýa á vegum Amnesty International, Sudan Democracy First Group og NGO International Film Festival þar sem súdanskt listafólk sýnir verk sín til stuðnings óbreyttum borgurum í Súdan sem þjást mest vegna átakanna.
Ahmad Khalefa er ísraelskur ríkisborgari frá Palestínu. Hann er lögfræðingur, baráttumaður fyrir mannréttindum og var nýlega kosinn borgarfulltrúi.
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International 2023 var kynnt á aðalfundi þann 21. mars 2024. Skýrslan greinir frá öllu starfi deildarinnar frá árinu. Eitt af því sem stóð upp úr var skýrsla Amnesty International sem kom út í janúar 2023 um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi á Íslandi. Hún fékk mikla athygli í fjölmiðlum og ýtti undir umræður í samfélaginu um óhóflega beitingu einangrunarvistar á Íslandi á meðan einstaklingar sæta gæsluvarðhaldi.
Í kjölfar samþykktar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem hvatt er til tafarlauss vopnahlés á meðan Ramadan [föstumánuður múslima] stendur yfir sem leiðir til varanlegs vopnahlés ásamt tafarlausrar og skilyrðislausrar lausnar gísla og aukins aðgangs mannúðaraðstoðar að Gaza, lét Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, eftirfarandi orð falla:
Mannréttindalögfræðingurinn Yu Wensheng og kona hans Xu Yan voru færð í varðhald þann 13. apríl 2023 þegar þau voru á leið sinni að hitta sendiherra Evrópusambandsins í Peking í Kína. Hjónin eru bæði þekkt í Kína sem aðgerðasinnar og voru handtekin fyrir að „stofna til deilna“ og „að hvetja til kollvörpunar ríkisvaldsins“. Ári síðar liggur enn ekki fyrir dagsetning á réttarhöldum yfir þeim.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja á ný greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Ísland var á meðal þeirra ríkja sem ákváðu í janúar að frysta greiðslur í kjölfar þess að Ísraelar sögðu 12 af 30 þúsund starfsmönnum UNRWA hefðu átt þátt í árás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. Ákvörðunin var mjög umdeild og gagnrýnd af hálfu margra, þ.á.m. Amnesty International.
Um langa hríð hefur verið lítið svigrúm fyrir friðsamleg mótmæli og tjáningarfrelsi í Rússlandi en í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu hefur það í raun horfið með öllu. Viku eftir innrásina, í febrúar 2022, innleiddu rússnesk stjórnvöld ritskoðunarlög í þeim tilgangi að brjóta á bak aftur mótmæli gegn innrásinni og stríðinu. Tveimur árum síðar afplánar fjöldi fólks áralanga fangelsisdóma fyrir friðsamlegt andóf gegn stríðinu.