SMS-aðgerðanet: Hækkun
Á hverjum degi fær Amnesty International upplýsingar um mannréttindabrot sem eiga sér stað um allan heim.
Á hverjum degi fær Amnesty International upplýsingar um mannréttindabrot sem eiga sér stað um allan heim.
Hæstiréttur Bretlands hefur staðfest tveggja daga fyrirtöku í máli Julian Assange, dagana 20.-21. febrúar, til að ákvarða hvort að Julian Assange fái fleiri tækifæri til að fara með mál sitt fyrir dómstóla í Bretlandi. Verði ákvörðunin sú að hann hafi fullnýtt rétt sinn til áfrýjunar vegna fyrirhugaðs framsals til Bandaríkjanna er aðeins tvennt í stöðunni. Framsalsferlið til Bandaríkjanna mun hefjast eða Julian Assange leiti til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Rocío San Miguel, þekkt baráttukona fyrir mannréttindum, var handtekin að geðþótta þann 9. febrúar 2024 á flugvellinum í Caracas í Venesúela. Hún sætir þvinguðu mannshvarfi (leynilegu varðhaldi yfirvalda).Þetta er ein af aðferðunum sem hafa verið skráðar sem stjórnvöld beita til að bæla niður andstöðu.
Lögreglurannsókn stendur enn yfir á mannshvarfi 43 nemenda þann 26. september 2014 . Síðustu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu mögulega vanrækslu eða þátttöku hersins í hvarfi nemendanna.
Aftökur tveggja manna eftir svívirðilega ósanngjörn réttarhöld bera þess merki að írönsk yfirvöld ganga sífellt lengra í grimmd sinni. Mohammad Ghobadlou, 23 ára mótmælandi með þroskahömlun, var tekinn af lífi við dögun þann 23. janúar síðastliðinn í kjölfar leynilegs málaferlis og úrskurðar.
Undirrituð félagasamtök fagna því að um 100 einstaklingum á Gaza hafi verið veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli laga um útlendinga og sameiningu fjölskyldna. Vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna sem nú ríkja á Gaza, hvetja samtökin íslensk stjórnvöld til þess að leggja allt kapp á að tryggja tafarlausa brottför þessa hóps frá Gaza til Íslands. Hópurinn samanstendur aðallega af konum og börnum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá hvetja undirrituð félagasamtök stjórnvöld til þess að taka til efnismeðferðar allar þær umsóknir palestínsks fólks sem nú liggja fyrir.
Frá því að talíbanar tóku við völdum í ágúst 2021 hafa konur sem mótmæla grimmilegri stefnu talíbana gegn konum þar í landi ýmist sætt þvinguðum mannshvörfum (leynilegu varðhaldi yfirvalda), handtökum að geðþótta eða pyndingum.
Samkvæmt Amnesty International er fyrirskipun alþjóðadómstólsins í Haag um bráðabirgðaráðstafanir vegna málsóknar Suður-Afríku á hendur Ísraels um hópmorð mikilvægt skref sem gæti hjálpað til að veita palestínsku fólki á á Gaza vernd gegn þjáningum og óafturkræfum skaða.
Kúrdinn Reza (Gholamreza) Rasaei er í bráðri hættu á að vera tekinn af lífi vegna máls sem tengist fjöldamótmælunum í Íran sem stóðu yfir milli september og desember árið 2022.
Amnesty International er stærsta mannréttindahreyfing í heimi. Kjarni starfsins felst í að berjast gegn mannréttindabrotum um heim allan.
Mannréttindafrömuðurnir og samviskufangarnir Ahmed Mansoor, Mohammed al-Roken og Nasser bin Ghaith eru meðal 87 manna frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem sóttir eru til saka í nýju máli sem byggt er á upplognum ákærum um hryðjuverk.
Anon Nampa, baráttumaður fyrir mannréttindum og lýðræði, hefur hlotið tvo fangelsisdóma fyrir að nýta friðsamlega mannréttindi sín og á yfir höfði sér fjölda ákæra sem gætu leitt til áratugalangrar fangelsisvistar.