Súdan: Kynferðisfbeldi algengt í átökunum
Kynferðisofbeldi er algengt í átökunum í Súdan. 12 milljónir eiga á hættu að verða fyrir kynferðisofbeldi.
Kynferðisofbeldi er algengt í átökunum í Súdan. 12 milljónir eiga á hættu að verða fyrir kynferðisofbeldi.
Okkar árlega herferð Þitt nafn bjargar lífi gekk vel árið 2024 þrátt fyrir að hún hafi verið minni í umsvifum en undanfarin ár. Á Íslandi söfnuðust 49.038 undirskriftir fyrir öll málin sem var aðeins meira en í fyrra ef miðað er við fjölda mála þar sem málin í ár voru níu en ekki tíu eins og undanfarin ár. Í heildina á heimsvísu var gripið til tæplega 4,7 milljóna aðgerða í 200 löndum og næstum 380 þúsund stuðningskveðjur voru skrifaðar til þolendanna til að sýna þeim stuðning á erfiðum tímum.
Þúsundir einstaklinga í Eþíópíu hafa sætt þvinguðum brottflutningum frá heimilum sínum vegna yfirgripsmikilla skipulagsbreytinga stjórnvalda (e. Corridor Development Project) í höfuðborg landsins Addis Ababa og 58 öðrum borgum og bæjum víðsvegar um landið.
Mannréttindafrömuðurinn Moussa Tchangari og framkvæmdastjóri félagasamtakanna Citizens’ Alternative Spaces var handtekinn þann 3. desember síðastliðinn á heimili sínu í Niamey, höfuðborg Níger.
Nú þegar ár er liðið frá upphafi stríðsátaka á milli hersveitar Súdans og RSF-hersveita (e. Rapid Support Forces) hafa viðbrögð alþjóðasamfélagsins verið sorglega bágborin á sama tíma og mannfall óbreyttra borgara í landinu eykst. Í dag þann 15. apríl, þegar ár er liðið frá upphafi átakanna, verður listasýning haldin í Naíróbí í Kenýa á vegum Amnesty International, Sudan Democracy First Group og NGO International Film Festival þar sem súdanskt listafólk sýnir verk sín til stuðnings óbreyttum borgurum í Súdan sem þjást mest vegna átakanna.
Keren-Happuch Aondodoo Akpagher var 14 ára stúlka og nemandi í Premier Academy í Abuja í Nígeríu. Grunur er um að henni hafi verið nauðgað í skólanum en hún dó nokkrum dögum síðar, 22. júní 2021. Krufning bendir til þess að hún hafi látist að völdum sýkingar sem hún fékk í kjölfar nauðgunar.
Umhverfisverndarsinninn Angélique Decampe tekur virkan þátt í því að vernda Vohibola-skóginn á Madagaskar.
Þingið í Úganda samþykkti þann 2. maí síðastliðinn frumvarp sem beinist gegn samkynhneigð. Forseti landsins, Yoweri Museveni, hefur til 31. maí til að undirrita frumvarpið, beita neitunarvaldi eða leggja það aftur fyrir þingið.
Morris Mabior Awikjok Bak, gagnrýnandi stjórnvalda í Suður-Súdan, var handtekinn að geðþótta þann 4. febrúar sl. í Naíróbí, höfuðborg Kenýa, þar sem hann býr.
Á enskumælandi svæðum Kamerún hefur verið herjað á stuðningsfólk stærsta stjórnarandstöðuflokks landsins, mannréttindafrömuði, aðgerðasinna og mótmælendur fyrir það eitt að nýta sér tjáningarfrelsið og réttinn til að mótmæla friðsamlega. Rúmlega hundrað einstaklingar hafa verið handteknir að geðþótta.
Hætta er á þvinguðum brottflutningum Masai-hirðingjasamfélagsins til að greiða leið fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Um 70.000 einstaklingar eru í hættu í kjölfar þess að liðsafli lögreglu og hers kom í bæinn Loliondo í norðurhluta Tansaníu þar sem Masai-fólkið býr. Liðsaflinn kom á svæðið þann 7. júní í þeim tilgangi að taka land af Masai-fólkinu samkvæmt áætlun yfirvalda. Mótmæli hófust tveimur dögum síðar. Yfirvöld beittu táragasi og skotvopnum gegn mótmælendum. 25 einstaklingar voru handteknir og ranglega ákærðir fyrir samsæri um morð á lögreglufulltrúa.
Þitt nafn bjargaði lífi Magai árið 2020 þegar dauðadómur var felldur úr gildi. Nú er hann laus úr haldi. Magai Matiop Ngong var leystur úr haldi í Suður-Súdan þann 22. mars 2022. Mál hans var eitt af málum okkar í árlegri herferð, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2019. Hann var aðeins 15 ára þegar hann var dæmdur til dauða. Í kjölfar herferðar okkar var dauðadómur yfir honum felldur úr gildi í júlí 2020 á þeim forsendum að hann var barn að aldri þegar dómur var kveðinn upp. Það stríðir gegn alþjóðlegum mannréttindalögum og lögum Suður-Súdan að dæma einstakling til dauða sem er barn að aldri þegar glæpurinn er framinn.