Þinn réttur
Mikilvægur þáttur í baráttunni gegn pyndingum og annarri illri meðferð felst í fyrirbyggjandi aðgerðum. Þar á meðal skiptir máli að fólk þekki eigin réttindi í samskiptum við valdstjórnina.
Mikilvægur þáttur í baráttunni gegn pyndingum og annarri illri meðferð felst í fyrirbyggjandi aðgerðum. Þar á meðal skiptir máli að fólk þekki eigin réttindi í samskiptum við valdstjórnina.
Okkar árlega herferð Þitt nafn bjargar lífi gekk vel árið 2024 þrátt fyrir að hún hafi verið minni í umsvifum en undanfarin ár. Á Íslandi söfnuðust 49.038 undirskriftir fyrir öll málin sem var aðeins meira en í fyrra ef miðað er við fjölda mála þar sem málin í ár voru níu en ekki tíu eins og undanfarin ár. Í heildina á heimsvísu var gripið til tæplega 4,7 milljóna aðgerða í 200 löndum og næstum 380 þúsund stuðningskveðjur voru skrifaðar til þolendanna til að sýna þeim stuðning á erfiðum tímum.
Götukynnar Íslandsdeildar Amnesty International hafa nú hafið störf fyrir sumarið. Þau munu kynna starf samtakanna og bjóða áhugasömu fólki að gerast Vonarljós. Vonarljós eru mánaðarlegir styrktaraðilar samtakanna og tákn um von fyrir þolendur mannréttindabrota.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International var haldinn 6. mars síðastliðinn. Að venju var ársskýrsla deildarinnar flutt, fjárhagur og ársreikningar kynnt og samþykkt á fundinum. Fjárhagsáætlun og starfsáætlun fyrir komandi ár lögð fram til samþykktar. Engar lagabreytingar voru að þessu sinni.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 6. mars 2025 kl. 18 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð
Gögn sem Amnesty International aflaði sýna að á tíu ára tímabili, frá 2012 til 2021, sættu 825 einstaklingar einangrunarvist í gæsluvarðhaldi á Íslandi. Þar af voru tíu einstaklingar á aldrinum 15 til17 ára. Í fámennu landi þar sem tíðni fangelsisvistar er almennt lág, sérstaklega þegar kemur að gæsluvarðhaldi, þá eru þessar tölur áhyggjuefni.
Um þessar mundir sér fyrirtækið Símstöðin um að hringja í almenning fyrir okkar hönd til að safna stökum styrkjum að upphæð 5.900 kr.
Íslandsdeild Amnesty International hefur gefið út fræðsluefnið Réttindi útskýrð sem eru tvö fræðsluhefti sem fjalla um mannréttindi og vopnuð átök.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International var með mannréttindagjörning fyrir utan Alþingishúsið í hádeginu þann 9. desember.
Á alþjóðlega mannréttindadeginum, þriðjudaginn 10. desember, frumsýnir Íslandsdeild Amnesty International heimildarmyndina Vonarljós í Bíó Paradís kl. 19 í sal 1. Aðgangur er ókeypis og öllum boðið að mæta á meðan húsrúm leyfir.
Herferðin Þitt nafn bjargar lífi gengur vel í ár líkt og áður. Undirskriftum er safnað víðs vegar um heim til stuðnings níu einstaklingum og hópum sem þolað hafa mannréttindabrot. Fjölmargar fræðslur um herferðina hafa verið í skólum, bæði framhalds- og grunnskólum. Á döfinni eru fjölbreyttir viðburðir og undirskriftasafnanir í tengslum við herferðina.
Í nýlegri úttekt vakti Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna (e. Human Rights Committee) athygli á áhyggjum sínum er varða mannréttindi á Íslandi, þar sem nefndin tók meðal annars undir áhyggjuefni sem sett voru fram í skriflegri skýrslu Amnesty International. Nefndin tók undir þrjú af fjórum lykilatriðum sem Amnesty International vakti sérstaklega athygli á og lagði til breytingar er varða útlendingalög, beitingu einangrunarvistar og lagaákvæði um eftirlit með aðgerðum lögreglu.