Ísrael/hernumda svæðið í Palestínu: Gíslar eru ekki skiptimynd í samningagerð. Tafarlaust vopnahlé og lausn gísla brýn nauðsyn
Palestínskir vopnaðir hópar verða að leysa úr haldi óbreytta borgara sem er haldið í gíslingu skilyrðislaust og án tafar. Amnesty International ítrekar þessa kröfu nær tveimur árum eftir að óbreyttir borgarar voru teknir í gíslingu í árásum sem Hamas leiddi í suðurhluta Ísrael þann 7. október 2023.

