Evrópuráðið: Nýjar aðgerðir til að auka áhrif ráðsins
Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í næstu viku kallar Amnesty International eftir nýjum aðgerðum til að auka áhrif Evrópuráðsins.
Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í næstu viku kallar Amnesty International eftir nýjum aðgerðum til að auka áhrif Evrópuráðsins.
Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík um miðjan maí kallar Amnesty International eftir viðnámi við bakslagi í jafnrétti kynjanna. Stjórnvöld um alla Evrópu hafa í auknum mæli á síðustu árum takmarkað kvenréttindi og réttindi hinsegin fólks.
Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík 16.-17. maí kallar Amnesty International eftir vernd og styrkingu óháðra dómskerfa í löndum Evrópuráðsins til að standa vörð um mannréttindi. Mannréttindadómstóll Evrópu er mikilvægur til að standa vörð um mannréttindalöggjöf í Evrópu en stóraukinn málafjöldi sem ratar til Mannréttindadómstólsins ber merki þess að sjálfstæði og hlutleysi dómstóla aðildarríkjanna sé ekki trygg.
Á alþjóðadegi fjölmiðlafrelsis staðfestir Amnesty International að vel þekkt fjölmiðlakona í Dóminíska lýðveldinu hafi verið skotmark njósnahugbúnaðarins Pegasus frá NSO Group. Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið þar í landi. Tæknideild Amnesty International skoðaði síma Nuria Piera og staðfesti að Pegasus-njósnahugbúnaður hefði verið komið fyrir í símann hennar með fullum aðgangi að öllu tækinu á árunum 2020-2021. Piera er rannsóknarfjölmiðlakona sem hefur beint sjónum sínum að spillingu og refsileysi í Dóminíska lýðveldinu á löngum ferli sínum.
Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í maí næstkomandi kallar Amnesty International eftir sterkari vernd borgaralegra réttinda.
Tangaraju s/o Suppiah á yfir höfði sér fyrirhugaða aftöku þann 26. apríl 2023 í Singapúr. Tangaraju var dæmdur fyrir sölu á einu kílói af kannabisefni og fékk hann lögbundinn dauðadóm fyrir vímuefnabrot.
Í framhaldi af útgáfu skýrslu Amnesty International í janúar á þessu ári um beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi á Íslandi, hélt deildin málþing í Þjóðminjasafninu þann 18. apríl síðastliðinn. Málþingið fór fram á ensku og bar yfirskriftina, Pre-trial solitary confinement in Iceland: Making progress in line with international obligations.
Í maí heldur Evrópuráðið leiðtogafund í Reykjavík þar sem áætlað er að 46 leiðtogar ríkja Evrópu muni mæta og ræða stöðu grunngilda álfunnar: mannréttindi, lýðræði og réttarríki. Fundurinn verður sá fjórði sem haldinn er í sögu ráðsins sem var stofnað árið 1949 og er ætlað að staðfesta samstöðu ríkja um grunngildin og sýna Úkraínu mikilvægan stuðning vegna innrásar Rússlands.
Leyniþjónusta og öryggissveitir í Íran hafa beitt barnunga mótmælendur, allt niður í 12 ára, hrottafengnum pyndingum til að hindra þátttöku þeirra í mótmælum, meðal annars barsmíðum, svipuhöggum, rafstuði, nauðgunum og öðru kynferðisofbeldi.
Emirlendris Benítez, 42 ára móðir, systir og sölukona, var handtekin að geðþótta í Venesúela í ágúst 2018. Hún er í haldi vegna stjórnmálaskoðana sinna og hefur sætt pyndingum.
Kamile Wayit, Úígúri og nemi í Henan í Kína var handtekin af lögreglu þann 12. desember 2022 þegar hún kom heim í frí til Atush í Xikiang héraði.
Yok, 15 ára stúlka, er í gæsluvarðhaldi í Bangkok í Tælandi á grundvelli laga sem banna gagnrýni á konungsríkið í kjölfar þess að hún tók þátt í friðsamlegum mótmælum. Yok tók þátt í mótmælum þann 14. október 2022 þar sem kallað var eftir því að lög sem banna gagnrýni á konungsríkið yrðu felld úr gildi.