Tyrkland: Mannréttindafrömuður í haldi
Mannréttindafrömuðurinn Nimet Tanrıkulu var handtekin á heimili sínu í Istanbúl af lögreglunni þann 26. nóvember síðastliðinn.
Mannréttindafrömuðurinn Nimet Tanrıkulu var handtekin á heimili sínu í Istanbúl af lögreglunni þann 26. nóvember síðastliðinn.
Íslandsdeild Amnesty International hefur gefið út fræðsluefnið Réttindi útskýrð sem eru tvö fræðsluhefti sem fjalla um mannréttindi og vopnuð átök.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International var með mannréttindagjörning fyrir utan Alþingishúsið í hádeginu þann 9. desember.
Á alþjóðlega mannréttindadeginum, þriðjudaginn 10. desember, frumsýnir Íslandsdeild Amnesty International heimildarmyndina Vonarljós í Bíó Paradís kl. 19 í sal 1. Aðgangur er ókeypis og öllum boðið að mæta á meðan húsrúm leyfir.
Herferðin Þitt nafn bjargar lífi gengur vel í ár líkt og áður. Undirskriftum er safnað víðs vegar um heim til stuðnings níu einstaklingum og hópum sem þolað hafa mannréttindabrot. Fjölmargar fræðslur um herferðina hafa verið í skólum, bæði framhalds- og grunnskólum. Á döfinni eru fjölbreyttir viðburðir og undirskriftasafnanir í tengslum við herferðina.
Í nýlegri úttekt vakti Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna (e. Human Rights Committee) athygli á áhyggjum sínum er varða mannréttindi á Íslandi, þar sem nefndin tók meðal annars undir áhyggjuefni sem sett voru fram í skriflegri skýrslu Amnesty International. Nefndin tók undir þrjú af fjórum lykilatriðum sem Amnesty International vakti sérstaklega athygli á og lagði til breytingar er varða útlendingalög, beitingu einangrunarvistar og lagaákvæði um eftirlit með aðgerðum lögreglu.
Eftir að ljóst varð, á síðasta ári, að Aserbaísjan yrði gestgjafi fyrir COP29 hafa þöggunaraðgerðir stjórnvalda gegn gagnrýnisröddum aukist, með auknum handtökum og varðhaldi af geðþóttaástæðum ásamt málsóknum gegn fjölda aðgerðasinna og fjölmiðlafólks.
Norrænt ungliðaráð Amnesty International hefur gefið út ákall til forsætisráðherra fjögurra Norðurlanda um að viðurkenna aðskilnaðarstefnu Ísraels gegn Palestínubúum.
Íslandsdeild Amnesty International fagnaði um helgina að 50 ár eru liðin frá stofnun deildarinnar þann 15. september 1974. Til að fagna þessum áfanga voru haldnir þrír viðburðir helgina 13-15. september. Fyrsti viðburðurinn var í Norræna húsinu föstudaginn 13. september þar sem var haldið málþing í hádeginu. Á laugardeginum 14. september var stuðningsaðgerð og mannréttindajóga á Austurvelli fyrir baráttukonu fyrir kvenréttindum sem er í fangelsi í Sádi-Arabíu. Sjálf afmælisveislan var á sunnudeginum 15. september þar sem var fagnað með skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju sem endaði í menningarhúsinu Iðnó í veisluhöldum.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að 50 ár eru liðin frá stofnun deildarinnar í Norræna húsinu þann 15. september 1974. Rétt eins og aðrar deildir Amnesty International hefur Íslandsdeildin allt frá stofnun beitt sér fyrir auknum mannréttindum um heim allan, auk þess að stuðla að aukinni þekkingu almennings á mannréttindum. Deildin hefur einnig barist fyrir því íslensk lög og framkvæmd þeirra séu með þeim hætti að mannréttindi allra hópa sér virt og vernduð í hvívetna.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að 50 ár eru liðin frá stofnun deildarinnar í Norræna húsinu þann 15. september 1974. Haldið verður upp á þennan merka áfanga með þremur mismunandi viðburðum helgina 13. -15. september.
Víða í Evrópu á rétturinn til friðsamlegra samkoma undir högg að sækja þar sem ríki eru í auknum mæli að fordæma, glæpavæða og herja á friðsama mótmælendur með því að setja á óréttmætar takmarkanir með refsingum og beita kúgandi aðferðum til að kæfa niður andóf samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International.