Atena Daemi laus úr haldi!
Baráttukonan Atena Daemi er laus úr haldi! Mál hennar var partur af herferðinni Þitt nafn bjargar lífi 2018.
Baráttukonan Atena Daemi er laus úr haldi! Mál hennar var partur af herferðinni Þitt nafn bjargar lífi 2018.
Fanginn Heidar Ghorbani, íranskur kúrdi, á yfir höfði sér aftöku fyrir „vopnaða uppreisn gegn ríkinu” þrátt fyrir ósanngjörn réttarhöld og það að dómurinn yfir honum hafi staðfest að hann hafi aldrei verið vopnaður. Í ágúst 2021 hafnaði hæstiréttur Íran beiðni um endurupptöku. Dómurinn er byggður á þvingaðri játningu.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að síðastliðinn þriðjudag, þann 23. mars, hafi verið samþykkt ályktun í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í Íran, sem ríkjahópur undir forystu Íslands lagði fram. Umrædd ályktun tryggir áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til að fylgjast með og upplýsa mannréttindaráðið reglulega um stöðu mannréttinda í Íran.
Leyniþjónustan í Íran neitar Zeynab Jalalian, íranskri konu af kúrdískum uppruna, um aðgengi að heilbrigðisþjónustu til að þvinga fram játningu frá henni á myndbandi. Zeynab glímir við alvarlegar aukaverkanir eftir að hafa veikst af kórónuveirunni.
Íranski/sænski fræðimaðurinn Ahmadreza Djalali hefur verið í einangrunarvist í fangelsi í Tehran síðan 24. nóvember 2020 þegar hann fékk þær fréttir að aftaka hans væri yfirvofandi. Seint í desember bárust þær fréttir að aftökunni hefði verið frestað um mánuð. Enn er hætta á að hann verði tekinn af lífi á næstunni.
Arsalan Khodkam hlaut dauðadóm fyrir „njósnir“ eftir óréttlát réttarhöld sem stóðu yfir í 30 mínútur. Dómurinn var byggður á játningu sem náð var fram með pyndingum. Hann hefur ekki fengið að velja sér lögfræðing. Dauðadómur fyrir njósnir brýtur gegn alþjóðalögum.
Í gær afhenti Snædís Lilja Káradóttir, fyrir hönd ungliðahreyfingar Íslandsdeildar Amnesty International, Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra undirskriftir 2342 einstaklinga sem skrifuðu undir ákall þar sem krafist er þess að íslensk stjórnvöld veki athygli á stöðu mannréttinda í Íran á alþjóðavettvangi.
Myndbönd, ljósmyndir og frásagnir þolenda og vitna sem Amnesty International hefur undir höndum staðfesta að íranskar öryggissveitir hafa beitt ólögmætum aðgerðum gegn friðsömum mótmælendum víðsvegar um Íran eftir að yfirvöld viðurkenndu að hafa skotið niður farþegaflugvél frá Úkraínu þann 8. janúar síðastliðinn.
Saba Kordafshari, 21 árs írönsk baráttukona fyrir mannréttindum, var dæmd í 24 ára fangelsi fyrir friðsamlegt mannréttindastarf sitt, þar á meðal mótmæli gegn írönskum lögum um höfuðslæðu. Hún er samviskufangi sem leysa þarf umsvifalaust úr haldi án skilyrða.
Amnesty International kallar eftir því að alþjóðasamfélagið fordæmi beitingu banvæns ofbeldis af hálfu öryggissveita Írans sem hefur valdið dauða 143 mótmælanda frá því mótmæli hófust 15. nóvember síðastliðinn. Amnesty International telur dauðsföllin jafnvel enn fleiri og fylgist grannt með málum.
Átján ára unglingur, Daniel Zeinolabedini, sem er í haldi í Mahabad-fangelsi í Vestur-Azerbaijan héraði í Íran, á hættu á að vera tekinn af lífi. Hann var dæmdur til dauða fyrir manndráp í júní 2018 eftir ósanngjörn réttarhöld þegar hann var aðeins 17 ára. Aftaka væri alvarlegt brot á alþjóðalögum.
Nasrin Sotoudeh, virtur mannréttindalögfræðingur, var dæmd í 38 ára fangelsi og til að þola 148 svipuhögg eftir tvö óréttlát réttarhöld. Ákærur á hendur henni má eingöngu rekja til friðsamlegra mannréttindastarfa hennar, þar á meðal baráttu hennar fyrir réttindum kvenna og andstöðu við dauðarefsingunni.