Síur í notkun

32 niðurstöður

  • Kólumbía: Baráttukona í hættu í útgöngubanni

    Þann 17. apríl heyrði Jani Silva sex byssuskot í um 30 metra fjarlægð frá heimili sínu í Puerto Asís í suðvesturhluta Kólumbíu. Fimm dögum síðar heyrði hún þrjú byssuskot, þá í um 50 metra fjarlægð frá heimili sínu. Þessi tvö atvik áttu sér stað eftir að frjálsu félagasamtökin Inter-Ecclesiastical Commission of Justice and Peace fengu upplýsingar um fyrirhugað morð á Jani í lok mars.

  • Ameríka: Harkalegar aðgerðir gegn mótmælum 2019

    Milljónir einstaklinga fóru út á götur til að mótmæla ofbeldi, ójafnrétti, spillingu og refsileysi eða neyddust til að flýja heimaland sitt í leit að öryggi. Ríki beittu harkalegum aðgerðum gegn mótmælendum og umsækjendum um alþjóðlega vernd án þess að virða skyldur sína samkvæmt landslögum og alþjóðalögum. Þetta kemur fram í ársskýrslu Amnesty International fyrir Norður- og Suður-Ameríku árið 2019.

  • Skólar leyfi þátttöku nemenda í loftslagsverkföllum

    Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, hefur biðlað til 30 þúsund skóla víðsvegar í heiminum að nemendum verði leyft að taka þátt í loftslagsverkföllum sem eru án fordæmis og verða haldin 20. og 27. september. Opið bréf var sent til skólayfirvalda  í ýmsum löndum, þar á meðal Ástralíu, Kanada, Ungverjalandi, Spáni, Nýja-Sjálandi og Bretlandi.

  • Venesúela: Samfélög frumbyggja sæta árásum og enn í hættu

    Dagana 8. og 9. desember fóru fram heraðgerðir á svæðum þar sem Pemón-frumbyggjar búa í Canaima-þjóðgarðinum. Aðgerðirnar voru í tengslum við stærsta námugröft í Venesúela (Arco Minero del Orinoco, AMO) en yfir 100 þúsund ferkílómetrar af frumskógi hafa verið eyðilagðir. AMO er skilgreint sem mikilvægt þróunarsvæði (National Strategic Development Zone) til að vekja athygli á arðráninu sem þarna á sér stað. Lögð var fram áætlun sem miðar að því að vernda svæðið (Tepuy protection plan) gegn ólöglegum námugreftri. Gefið hefur verið út að aðgerðirnar þann 8. og 9. desember hafi verið framkvæmdar í samráði við Pemón-frumbyggjana, hinsvegar neita þeir að svo hafi verið.